Ronja í Mosfellsbæ
Leikfélag Mosfellssveitar frumsýndi söngleikinn Ronja ræningjadóttir þann 27. september s.l. Sagan er eftir Astrid Lindgren, þýðandi er Þorleifur Hauksson og tónlist er eftir ýmsa aðila og einnig frumsamin. Leikstjóri er Agnes Wild, tónlistarstjóri er Sigrún Harðardóttir, leikmynd og búninga sér Eva Björg Harðardóttir um. Sagan af Ronju Ræningjadóttur gerist í Matthíasarskógi þar sem ræningjaforinginn Matthías faðir Ronju ræður ríkjum. Ægileg elding klífur Matthíasarkastalann í tvennt nóttina sem Ronja fæðist og Helvítisgjáin verður til. Ronja er augasteinn og eftirlæti foreldra sinna og ræningjaflokksins. Þegar hún vex úr grasi áttar hún sig á því að faðir hennar, sem hún elskar mest...
Sjá meira


