Author: lensherra

Jólasýning Borgarbarna í Iðnó

Jólasýning Borgarbarna 2014 heitir  Mamma Gjé?.  Þetta er níunda árið sem Borgarbörn setja upp jólasöngleik sem ætlaður er öllum aldurhópum og stílað er inn á fjölskylduskemmtun. Þessi skemmtilegi jólasöngleikur inniheldur fjölmörg vinsæl erlend lög í íslenskum búningi, óvæntar uppákomur og kraftmikla dansa. Leikstjóri og höfundur handrits er Erla Ruth Harðardóttir og henni til aðstoðar er Karen Ýr  Jóelsdóttir.  Um söngstjórn sér Rebekka Sif Stefánsdóttir og danshöfundur er Auður Finnbogadóttir. Sýningin fjallar um ævintýri Mömmu Gjé og þeirra þrettán barna sem hún er með í fóstri.  Nú, þegar jólahátíðin er að ganga í garð og einungis þrettán dagar til jóla, er...

Sjá meira

Strandaglópar í Kópavogi

Unglingadeild Leikfélags Kópavogs sýnir frumsamið leikrit er nefnist Strandaglópar, fimmtudaginn 27. nóvember kl. 19.00. Leikritið segir frá hópi fólks sem verður skipreika á eyðieyju þar sem ýmsar hættur leynast. Leikstjóri er Guðmundur L. Þorvaldsson og Helga Björk Pálsdóttir hefur verið honum til aðstoðar. Sex leikarar taka þátt í sýningunni sem tekur um 30 mín. í flutningi.. Miðaverð er 500 kr. og hægt er panta miða á midasala@kopleik.is eða í síma 554 1985. Aðeins 2 sýningar eru fyrirhugaðar, fim. 27. nóv eins og áður segir og fös. 28....

Sjá meira

Vara vikunnar í Leikhúsbúð Bandalagsins

Body Illustration Make-up Colors frá Kryolan, eða Tattoo-litir eins og við köllum þá, eru sérstakir litir sem nota má til að teikna á húð t.d. gerfi tattoo eða myndir sem eiga að endast. Þegar liturinn er þornaður á húðinni þá smitar hann ekki, er vatnsheldur og endist lengi. Leikhúsbúiðn er við Kleppsmýrarveg 8, 104 Reykjavík og er opin alla virka daga frá 9-13 og sendir hvert á land sem er. Pantaðu í síma 5516974 eða með tölvupósti í netfangið info@leiklist.is Þarftu að fela tattoo? Eða vera með tattoo sem þú vilt ekki að endist ævilangt? Þá er þetta varan...

Sjá meira

Hugleikur með óperu til Belgíu

Sýning leikfélagsins Hugleiks, Hin einkar hörmulega ópera um grimman dauða Píramusar og Þispu, hefur verið valin til þátttöku á leiklistarhátíð Alþjóða áhugaleikhúsráðsins, AITA/IATA í Belgíu næsta sumar. Á hátíðinni verða sýningar frá öllum heimshornum, en hún er haldin annað hvert ár og er ein helsta hátíð áhugaleikhúshreyfingarinnar í heiminum. Óperan er tónsetning á þætti úr Draumi á Jónsmessunótt eftir William Shakespeare, en tónlistin er eftir Þorgeir Tryggvason. Fimm leikarar og þrír hljóðfæraleikarar taka þátt í sýningunni. Þetta verður í þriðja sinn sem Hugleikur fær inni á hátíð AITA/IATA, en félagið sýndi Undir Hamrinum á hátíðinni í Mónakó árið 2005...

Sjá meira

Coming Up í Tjarnarbíói

Verðlaunadansverkið Coming Up verður sýnt aftur einu sinni í nóvember í Tjarnarbíó í nóvember. Coming Up er samstarf tveggja danshöfunda og dansara, þeirra Katrínar Gunnarsdóttur og Melkorku Sigríðar Magnúsdóttur. Verkið var frumsýnt árið 2013 í Tjarnarbíó og fékk frábærar viðtökur bæði áhorfenda og gagnrýnenda.Coming Up hlaut grímuverðlaunin 2013 í flokknum „danshöfundar ársins“ og var verkið tilnefnt til menningarverðlauna DV. Coming up hefur verið sýnt á danshátíðum víða í Evrópu. Aðeins er um eina sýningu að ræða á Íslandi þann 23. nóvember kl. 21.00 og því um að gera að tryggja sér miða sem fyrst. Tveir danshöfundar ætla sér að skapa...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert