Author: lensherra

Fjalla–Eyvindur og Halla

Þjóðleikhúsið frumsýnir þann 26. mars á Stóra sviðinu eitt magnaðasta verk íslenskra leikbókmennta, Fjalla–Eyvind og Höllu eftir Jóhann Sigurjónsson, í uppsetningu Stefan Metz. Sögur af útilegumanninum Fjalla-Eyvindi og hinni stórlyndu ástkonu hans, Höllu, sem uppi voru á átjándu öld hafa lifað góðu lífi með íslensku þjóðinni allt fram á okkar daga. Leikrit Jóhanns Sigurjónssonar er átakamikið og grípandi, skrifað af næmum mannskilningi og býr yfir mikilli harmrænni dýpt. Halla er efnuð ekkja sem ræður Eyvind til sín sem vinnumann. Þau verða ástfangin og þegar Eyvindur neyðist til að flýja til fjalla, vegna saka úr fortíðinni, ákveður Halla að fara...

Sjá meira

Sokkabandið frumsýnir Hystory

Leikhópurinn Sokkabandið frumsýnir nýtt íslenskt verk, Hystory, eftir Kristínu Eiríksdóttur sem var nýverið tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í Borgarleikhúsinu 27. mars, 2015. Leikkonurnar Arndís Hrönn Egilsdóttir, Elma Lísa Gunnarsdóttir og Birgitta Birgisdóttir fara með hlutverkin í sýningunni en flær Elma Lísa og Arndís Hrönn hafa rekið Sokkabandið í um áratug og sett upp fjölmargar vandaðar sýningar. Tónlistarmaðurinn Högni Egilsson slæst nú til liðs við Sokkabandið en þetta er í annað sinn sem systkinin Högni og Arndís Hrönn vinna saman í leikhúsi en þau unnu einnig nýverið saman að sýningunni Bláskjár eftir Tyrfing Tyrfingsson. Hystory er samstarfsverkefni Sokkabandsins og Borgarleikhússins...

Sjá meira

Er ekki nóg að elska?

Föstudaginn 20. mars kl 20.00 frumsýnir Borgarleikhúsið á Nýja sviðinu verkið Er ekki nóg að elska? eftir Birgi Sigurðsson. Birgir hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir fyrri verk sín. Hilmir Snær Guðnason leikstýrir og fremst í flokki leikara er Kristbjörg Kjeld. Er ekki nóg að elska? er raunsæisleg og kraftmikil fjölskyldusaga sem lýsir fjölskylduátökum um leyndarmál sem ekki mega koma upp á yfirborðið því þau sverta þar með minningu mektarmanns. Jarðarför hans stendur fyrir dyrum og ekkjan berst hetjulega fyrir sóma hússins og minningu mikils stjórnmálamanns og hreinskiptins eiginmanns sem hefur gert afar óvenjulega kröfu í erfðaskránni. Birgir Sigurðsson er...

Sjá meira

Vara vikunnar í Leikhúsbúð Bandalagsins

Fresh Scratch blóð frá Kryolan. Þykkt gerfiblóð í sultuformi sem heldur glansinum þegar það þornar. Frábært í sár, þornar fljótt og þarf bara að kroppa af. Til í Dark í 50 gr. dós á kr. 3.125. Leikhúsbúiðn er við Kleppsmýrarveg 8, 104 Reykjavík og er opin alla virka daga frá 9-13 og sendir hvert á land sem er. Pantaðu í síma 5516974 eða með tölvupósti í netfangið info@leiklist.is Nánari upplýsingar go innihaldsefni: https://global.kryolan.com/product/fresh-scratch-50-ml#dark...

Sjá meira

Síðasta sýning á Óþarfa offarsa

Af óviðráðanlegum orsökum þarf að hætta sýningum á Óþarfa offarsa hjá Leikfélagi Kópavogs fyrr en áætlað var. Síðasta sýning verður sun. 15. mars. Verkið segir af borgarstjóra sem liggur undir grun um fjárdrátt og tveimur lítt hæfum lögreglumönnum sem undirbúa gildru á móteli til að standa hann að verki. Samband annars lögreglumannsins við kynsveltan endurskoðanda í næsta herbergi einfaldar ekki framvinduna. Þegar við þetta bætast svo óöruggur öryggisvörður úr Ráðhúsinu, illskiljanlegur leigumorðingi og elskuleg borgarstjórafrú er ekki von á góðu. Nánar um sýninguna á...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert