Author: lensherra

Klaufar og kóngsdætur í Freyvangi

Freyvangsleikhúsið frumsýnir barna- og fjölskylduleikritið Klaufar og kóngsdætur laugardaginn 24. október kl. 20.00. Um er að ræða leikrit eftir þrjá Ljóta hálfvita, Ármann Guðmundsson, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason. Ármann leikstýrir einnig verkinu. Verkið er leikgerð af sex ævintýrum H.C. Andersen; Eldfærunum, Næturgalanum, Hans Klaufa, Svínahirðinum, Förunautnum og Litlu stúlkunni með eldspýturnar – auk þess sem Ljóti andarunginn kemur nokkuð við sögu, ráfar milli ævintýra og hittir fyrir skapara sinn og hliðstæðu, ævintýraskáldið sjálft. Verkið hlaut Grímuna sem barnaleikrit ársins 2005 þegar það var sýnt í Þjóðleikhúsinu. Æfingar hafa staðið yfir síðan í lok ágúst og miðar vinnunni vel, hópurinn...

Sjá meira

Þetta er grín án djóks

Á morgun, fimmtudaginn 22. október, frumsýnir Menningarfélag Akureyrar glænýtt íslenskt verk í sviðsetningu Leikfélags Akureyrar og menningarhússins Hofs. Verkið ber titilinn Þetta er grin, án djóks og er eftir þau Halldór Laxness Halldórsson (Dóra DNA) og Sögu Garðarsdóttur. Um er að ræða sprenghlægilegt gamanverk þar sem þau Saga og Dóri leika sig sjálf… ef þau væru kærustupar. Verkið fjallar fyrst og síðast um húmor og velta þau mikið fyrir sér virði brandara. Hverju má gera grín að og hver má gera það? Þarf maður að sleppa því að segja alveg ógeðslega fyndinn brandara bara af því að hann er...

Sjá meira

„Einn koss enn ..“ aftur á svið í Hveragerði

Leikfélag Hveragerðis æfir nú upp  leikritið Einn koss enn og ég segi ekki orð við Jónatan. Leikritið var frumsýnt í vor en sýningar hættu skyndilega fyrir fullu húsi þegar einn leikarinn sleit hásin á miðri sýningu. Sýningar verða helgarnar  23. og 24. október og svo 30. og 31. október klukkan 20.00. Leikritið er eftir Marc Camoletti en leikgerð og þýðing eftir Sigurð Atlason. Leikstjóri er Ingrid Jónsdóttir. Leikritið fjallar um Jónatan sem býr með þremur flugfreyjum, þeim Herdísi, Hafdísi og Hjördísi, sem allar vinna hjá sitthvoru flugfélaginu og koma heim á mismunandi tímum  og vita ekki hver af annari....

Sjá meira

Þjóðleikhúsið í leikferð um landið 

–  Fimm ára börnum boðið á leiksýningu. Nú í október mun Þjóðleikhúsið leggja land undir fót og bjóða börnum víðsvegar um landið að njóta hinnar feykivinsælu Sögustundar. Þjóðleikhúsið hefur undanfarin sjö ár boðið börnum í elstu deildum leikskóla á höfuðborgarsvæðinu árlega í leikhúsið, til að njóta leiksýninga sem nefnast Sögustund. Þjóðleikhúsið er leikhús allra landsmanna og þess vegna hefur verið ákveðið að fara með Sögustundina í leikferð og gefa börnum á landsbyggðinni tækifæri á að kynnast töfraheimi leikhússins. Í sýningunni kemur fram brúðugerðarmeistarinn Bernd Ogrodnik ásamt brúðum sínum en umsjón hefur Þórhallur Sigurðsson leikstjóri. Leikferðin hefst með heimsókn til...

Sjá meira

Arty Hour #14 – Listamenn Tjarnarbíós kynna verk sín

Októberútgáfa listastundar Tjarnarbíós verður haldin 19. október kl. 20:00. Á þessum viðburðum fáum við að heyra frá þeim listamönnum sem vinna í Tjarnarbíó, annað hvort að uppsetningu verka eða við aðra listasmíði í vinnustofum í húsinu. Á þessum viðburði koma fram: Jenný Lára Arnórsdóttir, sem sér um Uppsprettuna – skyndileikhús Finnbogi Þorkell Jónsson, höfundur verksins Þú kemst þinn veg sem verður sýnt í október Unnur Elísabet og Berglind Rafns, sem frumsýna nýtt dansverk í október, This Conversation is missing a point Hannes Óli Ágústsson, en hann vinnur ásamt hópi fólks að nýju leikverki um þessar mundir, Láttu bara eins...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert