Kardemommubærinn á Króknum
Næstkomandi laugardag, 17. október frumsýnir Leikfélag Sauðárkróks Kardemommubæinn eftir Thorbjörn Egner. Hulda Valtýsdóttir þýddi verkið og Kristján frá Djúpalæk þýddi söngtextana. Leikstjóri er Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir. Í Kardemommubæ búa margar skemmtilegar persónur sem lifa sínu lífi með bakaríi og rakarastofu og dýrasala, auk bæjarfógetans sem heitir Bastían. Það er líka eins gott því á stjái eru þrír ræningjar sem rupla og þarf bæjarfógetinn að hafa sig allan við til að hafa aðgát á þeim og halda öllu í röð og reglu. En ræningjarnir eru líka góðir og reynast hjálparhellur þegar neyð kemur upp í Kardemommubænum. 26 leikarar eru á...
Sjá meira


