Author: lensherra

Dracula’s Pack

Byltingin byrjar í Reykjavík – Frumsýning 23. júní í Tjarnarbíói Dracula’s Pack er sviðsverk þar sem dans, leiklist og tónlist sameinast. Hver sýning verður einstök því áhorfendur hafa áhrif á framvindu verksins. Sýningin er samin og flutt af listamönnum frá fimm löndum í leikhúsinu Tjarnarbíói. Stjórnandi sýningarinnar er Juliette Louste sem er búsett á Íslandi og hefur sýnt danssýningar víðsvegar um heiminn. Nýlega stofnaði hún dansfélagið Juliette Louste Company og er Dracula’s Pack stærsta verkefni félagsins til þessa. Hún hefur sett saman hóp listamanna úr ólíkum áttum, sem hún hefur kynnst á ferð sinni um heiminn. Listamennirnir koma frá Íslandi,...

Sjá meira

Grímuverðlaunin 2016 voru afhent í kvöld

Gríman – íslensku sviðslistaverðlaunin voru veitt í 14. skipti við hátíðlega athöfn í Þjóðleikhúsinu í kvöld en sýnt var beint frá hátíðinni á RÚV. Kynnar kvöldsins voru Blær Jóhannsdóttir og Guðmundur Felixsson. Stefán Baldursson fyrrverandi Óperu – og Þjóðleikhússtjóri hlaut Heiðursverðlaun Sviðslistasambands Íslands fyrir ævistarf sitt í þágu sviðslista á Íslandi. Njála hlaut alls 10 verðlaun þ.á.m sem sýning og leikrit ársins en önnur verðlaun féllu svohljóðandi: Sýning ársins 2016 Njála í leikgerð Mikaels Torfasonar og Þorleifs Arnar Arnarsson Sviðsetning Borgarleikhúsið og Íslenski dansflokkurinn Leikrit ársins 2016 Njála í leikgerð Mikaels Torfasonar og Þorleifs Arnar Arnarssonar Sviðsetning Borgarleikhúsið og...

Sjá meira

Ekkert að óttast í Þjóðleikhúsinu 4. júní

Sýning Leikfélags Hafnarfjarðar, Ekkert að óttast, var valin Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins 2016 af valnefnd Þjóðleikhússins. Ari Matthíasson Þjóðleikhússtjóri tilkynnti valið á hátíðarkvöldverði í tengslum við aðalfund Bandalags íslenskra leikfélaga á Seyðisfirði þann 7. maí sl. Ekkert að óttast verður sýnd í Kassanum í Þjóðleikhúsinu laugardaginn 4. júní kl. 19.30. Ekkert að óttast (Gunnar á Leiðarenda) er gamanleikur eftir 12 höfunda úr höfundasmiðju LH. Leikritunarferlið tók um tvær vikur þar sem hver höfundur byrjaði á að skila inn einni persónu í persónubanka semsíðan voru skornar niður í sjö. Hver höfundur dró Tarot spil og saman mynduðu þau vísi að framvindu og áherslur sem...

Sjá meira

Tilnefningar til Grímunnar 2016

Njála, í leikgerð Mikaels Torfasonar, Þorleifs Arnar Arnarssonar og Ernu Ómarsdóttur, hlaut flestar tilnefningar til Grímunnar, Íslensku sviðslistarverðlaunanna, alls ellefu talsins. Sýningin ≈ [um það bil] hlaut átta tilnefningar og Mávurinn sjö. Grímuverðlaunin verða afhent í Þjóðleikhúsinu 13. júní næstkomandi. Hér að neðan má sjá allar tilnefningar til Grímunnar þetta árið: 1. Sýning ársins ≈ [um það bil] eftir Jonas Hassen Khemir Í sviðsetningu Þjóðleikhússins Flóð eftir Hrafnhildi Hagalín og Björn Thors í sviðsetningu Borgarleikhússins Illska eftir Eirík Örn Norðdahl í leikgerð Óskabarna ógæfunnar Sviðsetning – Óskabörn ógæfunnar og Borgarleikhúsið Mávurinn eftir Anton Tsjekhov í sviðsetningu Borgarleikhússins Njála í...

Sjá meira

Ein stök sýning á Ubba kóngi

Fimmtudaginn 26. maí næstkomandi verður fjáröflunarsýning í Gaflaraleikhúsinu í tilefni af því að uppsetning Leikfélags Hafnarfjarðar á Ubba kóngi hefur verið valin til þátttöku á alþjóðlegu leiklistarhátíðinni Strawanz í Bregenzerwald í Austurríki í júní. Miðaverð aðeins 2000 kr.Pantanir á leikfelag@gmail.comÁ annan tug leikara og hljóðfæraleikara taka þátt í sýningu LH, en aðalhlutverkin, Ubbi kóngur og Ubba kona hans, eru í höndum Halldórs Magnússonar og Huldar Óskarsdóttur. Tónlistin er frumsamin af Eyvindi Karlssyni fyrir sýninguna og söngtextar eru eftir Karl Ágúst Úlfsson og Þórarin Eldjárn.Leikritið Ubbi kóngur er kannski betur þekkt sem Bubbi kóngur, en Herranótt frumflutti það hér á landi undir því...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert