Author: lensherra

Naktir í náttúrunni, frumsýning í Hveragerði

Föstudaginn 27. janúar frumsýnir Leikfélag Hveragerðis leikritið Naktir í náttúrinni sem byggt er á kvikmyndinni The full monty. Jón Gunnar Þórðarson leikstjóri hefur samið leikgerðina og staðfært hana að Hveragerði og nágrenni. Leikritið segir frá nokkrum garðyrkjumönnum og fleirum sem ákveða að auka tekjurnar með því að koma fram og sýna dans í þeim anda, sem myndin sem fylgir fréttinni  sýnir. Sérstaklega bera þeir hag félaga síns fyrir brjósti þar sem hann er atvinnulaus og á það á hættu að missa samband við son sinn borgi hann ekki meðlagið. Meðal annara fléttast inn í þetta Eden og Tívolíið sáluga, Kjörís,...

Sjá meira

Australiana í Tjarnarbíói

Sýningin Australiana er blanda af kómedíu og kabarett þar sem Jonathan Duffy veltir fyrir sér hversvegna hann flutti til Íslands frá Ástralíu. Hann hefur verið að gera það gott sem uppistandari á Íslandi og mun vera með þrjár sýningar á næstunni í Tjarnarbíói. Miðinn kostar kr.1990,- og hægt að nálgast miða hér: https://midi.is/theater/1/9949/Jono_Duffy-Australiana Sýningarnartímar : Laugardaginn – 28. janúar kl. 20:00 Laugardaginn – 4. febrúar kl. 20:00 Sunnudaginn – 12. febrúar kl....

Sjá meira

Inntökupróf í Rose Bruford

Rose Bruford, sem er alþjóðlegur leiklistarháskóli í London, mun halda inntökupróf og viðtöl fyrir allar deildir í Hinu Húsinu, Reykjavík dagana 18. og 19. mars 2017. Nánari upplýsingar og skráning með tölvupósti á: international@bruford.ac.uk og í síma: +44(0)20 8308 2638 Námið hefst í október 2017. Rose Bruford hefur verið valinn besti leiklistarháskóli Bretlands í skoðanakönnun nemenda nokkur ár í röð. ...

Sjá meira

Leikfélag Vestmannaeyja auglýsir eftir leikstjóra

Leikfélag Vestmannaeyja auglýsir eftir lærðum leikstjóra til að ráðast í vorverkefni félagsins sem verður farsinn „Sex í sveit“ eftir Marc Camoletti. Stefnt er að því að hefja æfingar í kringum 1. febrúar og vinna í 6-8 vikur. Umsóknir og ósk um frekari upplýsingar er veitt í gegnum netfangið leikfelag@simnet.is fyrir 16. janúar...

Sjá meira

Leikfélag Reykjavíkur 120 ára

Leikfélag Reykjavíkur fagnar í dag 120 ára afmæli sínu en það var stofnað 11. janúar 1897.  Félagið er elsta leikfélag sem starfað hefur óslitið á Íslandi og er jafnframt eitt elsta starfandi menningarfélag landsins.  Leikfélag Reykjavíkur var frá upphafi mjög metnaðarfullt og félagarnir tilbúnir að leggja hart að sér til að standa fyrir sýningum í  hæsta gæðaflokki en í 14. grein stofnlaga félagsins stóð ,,allir fyrir einn og einn fyrir alla…“  – það endurspeglar hugsjónir félagsins og samstöðu félaganna sem hefur haldist til þessa dags. Leikfélag Reykjavíkur hafði lengi aðsetur í Iðnaðarmannahúsinu eða Iðnó við Tjörnina en flutti í Borgarleikhúsið árið...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert