Elska – ástarsögur Norðlendinga
Leikverkið Elska – ástarsögur Norðlendinga var sýnt við góðan orðstír í Hömrum í Hofi síðastliðinn nóvember. Eftir fjölda áskorana hefur verið ákveðið að sýna það aftur laugardaginn 18. mars, og að þessu sinni í Samkomuhúsinu. Elska segir okkur sögu fimm para sem eru í raun og veru til og búa víðsvegar um norðausturlandið. Þau eru á mismunandi aldri, hafa mismunandi lífsskoðanir og mismunandi áhugamál. Eitt eiga þau þó sameiginlegt og þau eru öll í farsælum ástarsamböndum. Verkið er unnið orðrétt upp úr viðtölum sem tekin voru við pörin, en leikhópurinn safnaði saman raunverulegum ástarsögum til að nota sem efnivið...
Sjá meira


