Author: lensherra

Kolsvört kannibalkómedía

Stúdentaleikhúsið frumsýnir kolsvörtu kannibalkómedíuna Igíl Redug miðvikudaginn 23. janúar. Leifur er búinn að skipuleggja hið fullkomna kvöld og býður afar sérstökum gesti. Kvöldið fer þó ekki eins og Leifur hafði óskað sér og er ástæðuna að finna lengst aftur í mannkynssögunni. Igíl Redug er skrifað og leikstýrt af Natani Jónssyni og hópurinn samanstendur af 14 bráðefnilegum leikurum. Frumsýning er 23. janúar eins og áður sagði og eru 8 sýningar áætlaðar. Sýnt er á Garðatorgi 1 í Garðabæ. Miðasala fer fram hjá TIX  og hægt er að fylgjast nánar með á Facebooksíðu...

Sjá meira

Halaleikhópurinn í ástandinu

Líf og fjör er núna hjá Halaleikhópnum sem æfir leikritið ,,Ástandið – sögur kvenna frá hernámsárunum“ eftir Sigrúnu Valbergsdóttur og Brynhildi Olgeirsdóttur. Leikstjóri er Sigrún Valbergsdóttir. Leikritið fjallar um fjórar vinkonur sem hittast eftir 50 ár og rifja upp sögur sínar frá hernámsárunum. Sögur sem þær hafa sumar ekki getað sagt fyrr frá. Hvernig líf þeirra var þá og nú. Leikur, dans, söngur og tónlist koma við sögu en bæði gleði og sorg fylgir þessum sögum. Stefnt er að frumsýningu 8. febrúar...

Sjá meira

Aukasýningar á Tom, Dick og Harry

Smygl, ólöglegir innflytjendur og sundurlimuð lík. Er það hjálplegt þegar ungt par vill ættleiða barn? Hjónin Tom og Linda eiga von á konu frá ættleiðingarstofunni að spjalla við þau og taka út heimilið. Bræður Tom, þeir Dick og Harry vilja ósköp vel en tekst þó að setja allt í uppnám. Leikfélag Kópavogs verður með aukasýningar á tryllingsfarsanum Tom, Dick og Harry eftir feðgana Ray og Michael Cooney nú í janúar. Sýningar eru 16. 18. 20 og 22. janúar. Ray Cooney hefur verið ókrýndur konungur farsans um áraraðir og leikrit hans þekkja allir. Með vífið í lúkunum, Úti að aka,...

Sjá meira

Inntökupróf í Rose Bruford

Rose Bruford, sem er alþjóðlegur leiklistarháskóli í London, mun halda inntökupróf og viðtöl fyrir allar deildir í Gaflaraleikhúsinu, Hafnarfirði, þann 2. febrúar 2019. Nánari upplýsingar og skráning: Tölvupóstur: international@bruford.ac.uk Símanúmer: +44(0)20 8308 2638 Námið hefst í október 2019. Rose Bruford hefur verið valinn besti leiklistarháskóli Bretlands í skoðanakönnun nemenda nokkur ár í röð. www.bruford.ac.uk https://www.bruford.ac.uk/…/international-audition-and-int…/ https://www.facebook.com/events/528208894346913/ Námsbrautir Grunnnám (Undergraduate) – Acting, BA (Hons) – Actor Musicianship, BA (Hons) – Acting Foundation – American Theatre Arts, BA (Hons) (Leiklist og leikhúsfræði) – European Theatre Arts, BA (Hons) (Leiklist og leikhúsfræði) Framhaldsnám (Postgraduate and Research) – Actor & Performer Training, MA/MFA...

Sjá meira

Lokað yfir hátíðirnar

Að venju loka Bandalag íslenskra leikfélaga, Leikhúsbúðin og Vefverslunin yfir jól og áramót. Að þessu sinni lokum við frá og með 21. desember og opnum aftur 2. janúar. Njótið...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert