Author: lensherra

Námskeið fyrir börn og unglinga

Nú er hafin skráning á haustnámskeið Leikgleði hjá Leikfélagi Mosfellssveitar. Í boði verða 10 vikna námskeið, kennd einu sinni í viku í Bæjarleikhúsinu.Allar nánari upplýsingar og skráning eru á www.leikgledi.is. Leikfélag Mosfellssveitar stendur fyrir leiklistarnámskeiðum fyrir börn og unglinga allt árið um kring. Á námskeiðunum vinna nemendur með sjálfstraust, framkomu og framsögn, sigrast á feimni og kynnast hinum ýmsu þáttum sem snúast að leikhússtarfi. Öll námskeiðin enda með sýningu í...

Sjá meira

Opið hús hjá Hafnfirðingum

Leikfélag Hafnarfjarðar er að verða búið að koma sér vel fyrir í nýjum húsakynnum í gömlu kapellunni í St. Jósepsspítala. Félagið hélt í dag opið hús þar sem vinir og velunnarar fengu að skoða nýja leikhúsið. Á myndinni sjást glaðir leikfélagar fagna...

Sjá meira

Námskeið og stuttverk á Skaganum

Skagaleikflokkurinn hefur ýmislegt spennandi á prjónunum í vetur. Leiklistarnámskeið hefst fimmtudaginn 29. ágúst og stendur yfir í hálfan mánuð. Um er að ræða ca. 12 tíma námskeið sem endar með sýningu stuttverka. Leiðbeinandi á námskeiðinu er Jakob Þór Einarsson en hann steig einmitt sín fyrstu spor á leiklistarsviðinu með Skagaleikflokknum. Félagið hvetur sem flesta til að taka þátt. Aldurstakmark er 18 ára. Um miðjan september hefjast æfingar fyrir sýningu haustsins. Búið er að ráða leikstjórann Valgeir Skagfjörð sem líkt og Jakob tengist flokknum sterkum böndum. Óvíst er hvort um söngleik eða gamanleik verði að ræða en það ræðst af...

Sjá meira

Hugleikur í startholunum

Hugleikur ætlar að byrja leikárið með trompi og setja upp glænýtt verk eftir Þórunni Guðmundsdóttur. Um er að ræða söngleik sem gerist á stríðsárunum og er hann sjálfstætt framhald af afmælissýningunni Stund milli stríða sem sýnd var vorið 2014. Sýnt verður í „Nemendaleikhúsinu“ – þ.e. gamla húsnæði Listaháskólans við Sölvhólsgötu 11. Leiksjóri er Þorgeir Tryggvason. Opinn samlestur á verkinu verður í æfingahúsnæði Hugleiks við Langholtsveg 109-111 sunnudaginn 1. september kl. 20. Allir velkomnir. Á aðalfundi Hugleiks í vor var kjörin ný stjórn. Dýrleif Jónsdóttir er áfram formaður og Þórarinn Stefánsson varaformaður Guðrún Eysteinsdóttir gjaldkeri. Nýir stjórnarmenn eru María Björt...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert