Author: lensherra

Leiklistarnámskeið í Kópavogi

Í næstu viku hefst leiklistarnámskeið á vegum Leikfélags Kópavogs undir stjórn Grímu Kristjánsdóttur. Á námskeiðinu verður aðaláhersla lögð á persónusköpun og undirbúning leikara fyrir hlutverk í hverskonar leikverkefnum. Fyrri vikuna verður farið í æfingar sem kallast object exercise sem eru æfingar í persónusköpun og seinni vikuna verður farið í senu vinnu með persónunum sem búið er að vinna með fyrri vikuna. Gríma Kristjánsdóttir er kennari námskeiðsins, en hún lærði leiklist í CISPA í Kaupmannahöfn og útskrifaðist þaðan 2016. Hún hefur leikið víða, bæði í leikhúsi og kvikmyndum og kennt námskeið í leiklist í nokkur ár. Námskeiðið verður í 6...

Sjá meira

Ársrit 2019 komið út

Ársrit Bandalags íslenskra leikfélaga árið 2019 er komið út. Í því er að finna upplysingar um starfsemi einstakra áhugafélaga á síðasta leikári og starfsemi hreyfingarinnar almennt. Fjöldi mynda prýðir ritið sem er tiltækt hér á vefnum. Hægt er panta útpentað eintak hjá Þjónustumiðstöð...

Sjá meira

Leikfélag Hafnarfjarðar hefur leik

Laugardaginn 21. september verður fyrsta sýning Leikfélags Hafnarfjarðar í nýju húsnæði leikfélagsins í Kapellunni, St. Jó, Suðurgötu 41. Sýningin hefst kl. 20:00 og er ókeypis inn. Nánari upplýsingar á...

Sjá meira

Leiklistarmiðstöð á Þingeyri

Enn eru ánægjuleg tíðindi af leiklistarlífinu á Vestfjörðum. Vonir standa nú til að Kómedíuleikhúsið fái aðstöðu fyrir leiklistarmiðstöð í gömlu bæjarskrifstofunum á Þingeyri. „Hér er um að ræða brautryðjenda verkefni í leiklistarmálum á svæðinu. Kómedíuleikhúsið ætlar að koma sér upp sérstakri leiklistarmiðstöð undir starfsemi sína á Þingeyri. Um er að ræða vinnuaðstöðu til æfinga á leikverkum okkar, skrifstofuaðstöðu Kómedíuleikhússins, aðstaða til hýsa leikmyndir okkar og búningasafn. Einnig mun aðstaðan nýtast sem æfingaaðstaða fyrir Leikdeild Höfrungs og síðast en ekki síst aðstaða til að geta boðið uppá leiklistarnámskeið. Fyrstu námskeiðin verða strax í nóvember þar sem heimamönnum gefst tækifæri til...

Sjá meira

Leiklistarlíf fyrir vestan

Leiklistin er víðar en á höfuðborgarsvæðinu. Á Vestfjörðum rekur Elvar Logi Hannesson Kómedíuleikhúsið sem hefur sett upp fjölda áhugaverðra leiksýninga undanfarin ár. Það er þó ekki allt, því Elvar Logi er einnig að skrá leiklistarsöguna. Hann gaf út Leiklist á Bíldudal fyrir nokkrum árum og er nú að gefa út bókina Leiklist á Þingeyri. Þar rekur hann á fróðlegan og ferskan hátt hina einstöku leiklistar- og listasögu Þingeyrar. Fer reyndar víðar því allur Dýrafjörðurinn er undir enda fall vötn öll þangað hvort heldur er í listinni eða lífinu. Leiklist og list á Þingeyri verður prýdd fjölda mynda frá hinu...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert