Einleikjahátíðin Act alone í samstarfi við Blábankann á Þingeyri blæs til einstakra einleikjabúða á Þingeyri. Einleikjabúðirnar verða haldnar helgina 1. – 3. nóvember í Leiklistarmiðstöð Kómedíuleikhússins og Blábankanum á Þingeyri. Kennarar verða þeir Elfar Logi Hannesson, einleikari og stofnandi Act alone, og Rúnar Guðbrandsson, leikstjóri. Skráning í einleikjabúðir Act alone er þegar hafin og gengur vel því nú eru aðeins 4 sæti laus. Einleikjabúðagaldið er sérlega einstakt aðeins 30.000.- krónur. Ekkert mál er að útvega gistingu á góðum prís á Þingeyri fyrir þá sem þess óska. Smiðjan er opin hvortveggja áhuga- sem atvinnufólki.
Skráning í einleikjabúðirnar er með tölvupósti á netfangið info@blabankinn.is.
Óskað er eftir því að hver þátttakandi komi með í einleikjabúðirnar eina 5. mín. einræðu sem unnið verður með. Í einleikjabúðum Act alone verður farið í helstu grunnþætti leikarans í einleik og ýmsar æfingar sem og fjölbreyttar spunaæfingar. Einstakir fyrirlestrar verða um sögu einleiksins bæði hér heima og erlendis. Farið verður yfir hvar megi finna efni til einleiksgerðar og rætt um hinar mörgu tegundir einleiksins.
Í lok búðanna verða einræðuverkefni smiðjunnar sýnd fyrir íbúa Þingeyrar. Þar munu áhorfendur jafnframt kjósa sína uppáhalds einræðu. Einræðan sem flest atkvæði hlýtur verður sýnd á Act alone 2020.