Leikfélag Sólheima sýnir um þessar mundir nýtt íslenskt barnaleikrit, Ævintýrakistuna eftir Guðmund Lúðvík Þorvaldsson sem einnig leikstýrir verkinu. Tónlistina semur Þröstur Harðarson, kokkur á Sólheimum.

Í Ævintýrakistuni eru sett saman þrjú þekkt Grimms ævintýri, Gullgæsin, Stígvélaði kötturinn og Brimarborgarhljómseitin.

Rúmur helmingur íbúa og starfsmana Sólheima koma á einhvern hátt að sýningunni.

Ekki missa af nýju íslensku barnaleikriti.

Nú eru bara tvær sýningar eftir:
Laugardaginn 29. apríl
Lokasýning verður sunnudaginn 30. apríl

Sýningar eru í Íþróttaleikhúsinu á Sólheimum, byrja kl. 14.00 og taka um klukkutíma.

Miðasalan er í síma 847 5323 eða solheimar@solheimar.is
Upplýsingar www.solheimar.is

Opið verður í kaffihúsinu Grænu könnunni og versluninni Völu á sýningardögum, verið hjartanlega velkomin og njótið!