Svefnlausi brúðguminn aftur á Króknum eftir 41 ár
Liðsmenn Leikfélags Sauðárkróks æfa nú af kappi gamanleikinn Svefnlausa brúðgumann eftir Arnold og Bach í þýðingu Sverris Haraldssonar. Leikstjóri er Jakob S. Jónsson, sem einnig gerði nýja leikgerð af handriti og staðfærði, en alls koma á þriðja tug manna að sýningunni. Frumsýnt verður í félagsheimilinu Bifröst 1. maí næstkomandi en það er einmitt opnunardagur Sæluvikunnar 2011. Leikritið fjallar um nýgift hjón sem lenda óvæntri uppákomu í brúðkaupsferðinni. Málin flækjast svo stig af stigi eins og góðum farsa sæmir, en enginn hlýtur þó varanlegan skaða af. Yfirsmiður leikmyndar er Indriði Ragnar Grétarsson, lýsingu hannar Guðbrandur Ægir Ásbjörnsson en búningar eru...
Sjá meira


