Leikfélagið Peðið frumsýnir Hlátur
Á föstudaginn langa, 22. apríl kl.20.00, frumsýnir Leikfélagið Peðið nýjan íslenskan gamanleik sem hlotið hefur nafnið Hlátur. Handritið er eftir Kristinn Kristjánsson, Jón Benjamín Einarsson og Guðjón Sigvaldason í samvinnu við leikhópinn. Guðjón er jafnframt leikstjóri sýningarinnar. Sýnt verður í Gallerí Bar 46, við Hverfisgötu 46. Leikfélagið Peðið setti fyrir nokkrum árum í gang leikritasamkeppni, eða öllu heldur samkeppni um drög að leikriti, sem síðan skyldi útfæra / vinna með höfundi og leikstjóra og skyldi sýnt á vegum leikfélagsins. Nokkur drög bárust í keppnina og dómnefnd valdi drög Kristins Kristjánssonar, sem þau áhugaverðustu og var ætlunin að vinna meira...
Sjá meira


