Year: 2011

Verslun Bandalagsins opnuð á nýjum stað

Þjónustumiðstöð Bandalags íslenskra leikfélaga hefur nú verið opnuð á ný og er nú til húsa að Kleppsmýrarvegi 8. Nýja húsnæðið er á jarðhæð að Kleppsmýrarvegi 8 í póstnúmeri 104 í Reykjavík en Kleppsmýrarvegur gengur niður af Skeiðarvogi og þetta er mjög stutt frá Húsasmiðjunni við Skútuvog, beint á móti Bónus, sjá kort....

Sjá meira

Aðalfundur Leikfélags Ölfuss 26. maí

Aðalfundur Leikfélags Ölfuss verður haldinn í Ráðhúskaffi, Þorlákshöfn fimmtudaginn 26. maí kl. 20:00. Auk venjulegra aðalfundarstarfa verða verkefni leikársins kynnt og tekið fagnandi á móti nýjum félögum. Leikfélag Ölfuss var stofnað haustið 2005 og hefur síðan þá sett upp 6 stórar sýningar auk þess sem félagið hefur tekið þátt í fjölmörgum uppákomum og smærri verkefnum. Félagið hefur vaxið og dafnað með hverju árinu og virkum félögum fjölgað jafnt og þétt. Góður andi og áhugasemi einkenna þennan félagsskap og markmiðið er alltaf að skemmta sjálfum sér og öðrum. Allir velkomnir á aðalfund.  ...

Sjá meira

Leikfélagið Sýnir heldur aðalfund 19. maí

Fimmtudaginn 19. maí kl. 20 heldur Leikfélagið Sýnir aðalfund sinn að Eyjarslóð 9, húsnæði Hugleiks. Þar verður, auk hefðbundinna aðalfundastarfa, kynnt verkefni næsta sumars sem verður ný leikgerð á riddarasögunni af Tristan og Ísönd sem Ármann Guðmundsson og Guðrún Sóley Sigurðardóttir hyggjast vinna í samvinnu við leikhópinn. Nýir jafn sem gamlir Sýnarar eru hvattir til að mæta á fundinn og vera með í sýningunni í sumar. Leikfélagið Sýnir var stofnað af nemendum fyrsta árs Leiklistarskóla Bandalagsins árið 1997. Síðan hefur félagið sett á annan verka með sérstaka áherslu á útileiksýningar og hefur þá gjarnan farið með í leikferðir út...

Sjá meira

Allra síðustu sýningar á Fjalla Eyvindi

Tvær sýningar í viðbót verða hjá Leikhópnum Aldrei óstelandi á Fjalla-Eyvindi Jóhanns Sigurjónssonar á Norðurpólum. Þær verða sunnudaginn 15. maí og þriðjudaginn 17. mai klukkan 20. Fjalla Eyvindur er ein magnaðasta ástarsaga íslensks leiksviðs og fjallar um stórar ástir og miklar fórnir, flókið samband karls og konu sem talar jafn mikið til okkar í dag og það gerði fyrir hundrað árum síðan. Þetta er óvenjuleg og einstök leikhúsupplifun í hráu rými. „Ég sá eitt sinn í draumi tvær mannverur, eina lögmál var ást þeirra. Þau voru hvort annars spegill. Í þeim spegli gat ekkert dulist.“ Leikritið Fjalla Eyvindur eftir...

Sjá meira

Gamli góði Villi – æfingar hafnar hjá Hugleik

Shakespeare gengur til liðs við Hugleik í síðasta verkefni félagsins á leikárinu. Ekki þó sjálfviljugur.  Höfundar félagsins hafa lagst yfir verk skáldsins og stolið þaðan öllu sem hnýsilegt má teljast en skrumskælt annað af vel þekktu smekkleysi sínu, og jafnvel samið frá grunni ýmislegt með misbeinar vísanir í verkin. Leikstjórar og leikendur hafa síðan bætt um betur með sínum uppátækjum. Útkoman er dagskrá sem fengið hefur nafnið Gamli góði Villi – Sjeikspír í höndum Hugleiks og óhætt að fullyrða sjaldan hefur sá gamli komist í hann krappari. Æfingar á leikþáttum og tónlist fyrir dagskrána standa nú yfir og verður...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert