Year: 2011

Aðalfundur Halaleikhópsins 2011 haldinn 28. maí

Verður haldinn laugardaginn 28. maí kl. 14.00 í Rauða salnum, Sjálfsbjargarhúsinu Hátúni 12 gengið inn að vestanverðu. Skv. lögum félagsins geta allir fullgildir félagsmenn gefið kost á sér í þessi embætti á fundinum. Nú er kjörið tækifæri fyrir nýtt fólk að gefa kost á sér í stjórn. Lög félagsins má finna á vefnum okkar. Dagskrá aðalfundar skv. lögum félagsins: 1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.2. Inntaka nýrra félaga.3. Skýrsla stjórnar.4. Afgreiddir endurskoðaðir reikningar félagsins.5. Afgreiðsla tillagna sem borist hafa fundinum, svo sem lagabreytingar. 6. Starfsemi næsta leikárs. 7. Kosning stjórnar, varastjórnar, tveir skoðunarmenn reikninga.8. Önnur mál Ath. aðeins skuldlausir félagar...

Sjá meira

Metaðsókn á Með táninginn í tölvunni og leikferð framundan

Leikfélag Hólmavíkur leggur upp í leikferð um Vestfirði í næstu viku, með uppsetningu á hinum sprellfjöruga gamanleik  „Með táning í tölvunni“ eftir Ray Cooney. Nú er endanlega búið að ákveða hvar og hvenær sýningarnar verða en þær verða þrjár í ferðinni, á Patreksfirði, á Bolungarvík og í Súðavík. Leikfélagið á 30 ára afmæli á þriðjudaginn og auk þessarar uppfærslu er ætlunin að minnast afmælisins með fjölbreyttum hætti síðar á árinu. Það er Hólmvíkingurinn Arnar S. Jónsson sem leikstýrir og fara sjö leikarar með hlutverk í sýningunni og eru flestir þeirra að stíga sín fyrstu skref með leikfélaginu. Auk þeirra...

Sjá meira

Big Wheel Café í Þjóðleikhúsinu

Föstudaginn 27. maí býður leikhúsmaðurinn makalausi Kristján Ingimarsson gestum á harla óvenjulegt kaffihús við þjóðveginn, þar sem hver heimsókn varir ævina. Big Wheel Café var sýnt í Kaupmannahöfn í vetur og hlaut afar góða dóma. Kristján er höfundur og leikstjóri verksins, en auk hans taka danskir og íslenskir tónlistarmenn og leikarar þátt í sýningunni. Á meðal reglulegra gesta kaffihússins eru konan sem varð undir vörubíl, flutningabílstjóri með fjórar hendur og fjóra fætur, svín í alvarlegri sjálfsmyndarkrísu og Ninja sem berst fyrir því að vera tekin alvarlega.  Í sýningunni er talað, dansað og sungið á dönsku, íslensku og ensku, en...

Sjá meira

Góði dátinn Svejk í Þjóðleikhúsinu 29. maí

Athyglisverðasta áhugaleiksýning leikársins 2010 til 2011  er að þessu sinni Góði dátinn Svejk, leikgerð Colin Teevan eftir sögu Jaroslav Hasek, í uppsetningu Freyvangsleikhússins. Leikstjóri er Þór Tulinius. Sýningin hefur verið sýnd við miklar vinsældir í Freyvangsleikhúsinu í Eyjafirði, og verður nú sýnd á Stóra sviðinu þann 29. maí. Þetta er bráðfjörug sýning um ævintýri Góða Dátans Svejk í Stríðinu mikla, þar sem hann dregur dár af (sjálfsköpuðum) raunum okkar mannana með æðruleysi sínu og auðmýkt. Andlit hans ljómar af kærleika og ást til refsandi yfirboðarana sem úrskurða hann „löggiltan hálfbjána“. Hann er „fullkomlega sáttur“ hvað sem á bjátar og...

Sjá meira

Gamli góði Villi – Sjeikspír í höndum Hugleiks

Sunnudaginn 29. maí kl. 16 frumsýnir Hugleikur sýninguna Gamli góði Villi – Sjeikspír í höndum Hugleiks. Höfundar félagsins hafa lagst yfir verk skáldsins og stolið þaðan öllu sem hnýsilegt má teljast en skrumskælt annað af vel þekktu smekkleysi sínu, og jafnvel samið frá grunni ýmislegt með misbeinar vísanir í verkin. Leikstjórar og leikendur hafa síðan bætt um betur með sínum uppátækjum og óhætt er að fullyrða sjaldan hefur sá gamli komist í hann krappari.   William Shakespeare er um margt dæmigerður Hugleikshöfundur. Hann skrifaði fyrir sinn eigin leikhóp, sótti sér efni hingað og þangað, í eldri leikrit eða skáldsögur,...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert