Year: 2011

Leikfélagið Sýnir auglýsir eftir leikurum

Leikfélagið Sýnir er um þessar mundir að hefja æfingar á verkefni sumarsins, Sögu af Tristram og Ísönd, sem verður útileiksýning, sýnd í Elliðaárdal. Er þar á ferð ný leikgerð af þessari frægu riddarasögu og hefur hún allt sem prýða má góða leiksýningu, ástir, afbrýðisemi, ofbeldi, öfund, hugrekki, dreka og illan dverg. Frumsýnt verður seinni part júlí. Enn vantar nokkra leikara í hópinn og eru áhugasamir hvattir til að hafa samband við Ármann í síma 864-4880 eða Guðrúnu Sóley í síma 868-8720. Leikfélagið Sýnir var stofnað af ofvirkum áhugaleikurum sem Leiklistarskóla Bandalagsins árið 1997. Síðan hefur félagið sett á annan...

Sjá meira

Prufusöngur fyrir drengi og stúlkur í Hörpu

Íslenska óperan efnir til prufusöngs fimmtudaginn 9. júní fyrir þrjú hlutverk í Töfraflautunni eftir Mozart, sem frumsýnd verður í Hörpu í haust. Um er að ræða hlutverk „drengjanna þriggja“, „Drei Knaben“, sem koma töluvert við sögu í óperunni. Leitað er að ungum drengjum eða stúlkum með góðar bjartar sópranraddir, þó ekki yngri en 10 ára. Æskileg er menntun eða reynsla í söng og eins væri kostur ef viðkomandi hefði einhverja leikreynslu. Umsækjendur eru beðnir um að syngja eitt lag eða aríu að eigin vali. Æskilegt væri ef viðkomandi syngi líka upphaf síðari Finale: „Brátt kynnir ársól komu sína“ („Bald...

Sjá meira

Drama Master Class í Landnámssetrinu

Drama Master Class verður haldið í Landnámssetrinu í Borgarnesi dagana 1.-6. ágúst næstkomandi. Kennari er Michael Seibel, prófessor í leiklist, spuna og raddþjálfun. Kynnin við leikhúsið er opið boð sem krefst andlegs, tilfinningalegs og líkamlegs vilja til að nálgast það óþekkta, nýja og framandi. Á námskeiðinu er áherslan lögð á líkamlega vinnu leikarans, vinnu leikarans og skynjun með líkama, huga og nærveru á sviði svo eitthvað sé nefnt. Nákvæma lýsingu á námskeiðinu er að finna á http://dramamasterclassseibel.blogspot.com.    Námskeiðið verður haldið eins og áður sagði í Landnámssetrinu í Borgarnesi dagana 1. – 6. ágúst. Verð fyrir námskeiðið er 50.000. Óendurgreiðanlegt staðfestingargjald kr. 15.000...

Sjá meira

Skemmtiferð á vígvöllinn

FreyvangsleikhúsiðGóði dátinn Svejk í ÞjóðleikhúsinuLeikstjóri: Þór Tulinius Ég á bágt með að trúa því að nokkur sem var búinn að sjá sýningu Freyvangsleikhússins á Góða dátanum Svejk hafi efast um að þau yrðu fyrir valinu sem Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins þetta árið. Það er ekki oft sem maður sér viðamikla sýningu af þessu tagi heppnast svona gjörsamlega á öllum póstum. Hún er kraftmikil og geislandi af leikgleði. Hún er nákvæmlega og nostursamlega unnin og mikil rækt hefur verið lögð við smáatriði í leik, umgjörð, búningum og leikmunum. Leikurinn er án merkilegra veikra punkta og rís í eftirtektarverðar hæðir þar sem...

Sjá meira

Ný stjórn Leikfélags Ölfuss

Aðalfundur LÖ var haldinn í Ráðhúskaffi, Þorlákshöfn fimmtudagskvöldið 26. maí. Fundarstjóri var Árný Leifsdóttir og ritari Helena Helgadóttir. Ágæt mæting var og fóru fram hefðbundin aðalfundastörf. Meðal annars urðu breytingar á stjórn. Úr stjórn gekk Magnþóra Kristjánsdóttir og þau Kolbrún Gunnarsdóttir og Jónas Höskuldsson gengu úr varastjórn. Ottó Rafn Halldórsson tekur nú sæti í stjórn og tekur við starfi gjaldkera félagsins. Þrúður Sigurðar verður áfram formaður, Helena Helgadóttir ritari, Hulda Gunnarsdóttir varaformaður og Árný Leifsdóttir meðstjórnandi. Birna Rut Árnadóttir og Róbert Karl Ingimundarson eru nýir varastjórnarmenn. Er nýju stjórnarfólki óskað hér með til hamingju. Skýrslu stjórnar og styrkjanefndar má...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert