Year: 2011

Kona einsömul frumsýnt í Gaflaraleikhúsinu

Á kvennréttindadaginn, þann 19. júní næstkomandi, verður einleikurinn Kona Einsömul eftir leiklistarfrömuðinn Dario Fo og konu hans Franca Rame í þýðingu Aldísar Davíðsdóttur frumsýndur. Aldís fer einnig með einleik undir leikstjórn Guðjóns Þorsteins Pálmarsonar. Verkið tekur á réttindum kvenna á gamansaman hátt þar sem gert er grín af yfirgangssemi karlmanna og því hvernig konur eiga til að láta kúga sig. Einleikurinn fjallar um konuna Maríu og hvernig líf hennar breytist skyndilega þegar hún eignast nágrannakonu sem flytur í íbúðina á móti henni. Á milli glugga deilir hún með henni hversu æðislegt líf hennar er en brátt kemur í ljós...

Sjá meira

Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga 30. apríl 2011 í Mosfellsbæ

Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga í Bæjarleikhúsinu Mosfellsbæ 30. apríl 2011 1.     Fundarsetning. Kosning 2ja og 2ja fundarritara, sem taka þegar til starfa. Lögmæti fundarins kannað. Þorgeir Tryggvason, formaður Bandalagsins bauð fundargesti velkomna. Hann stakk upp á Grétari Snæ Hjartarsyni og Pétri Ragnari Péturssyni frá Leikfélagi Mosfellsveitar sem fundarstjórum og Ármanni Guðmundssyni, ritara skrifstofu, og Sigríði Láru Sigurjónsdóttur, Hugleik, sem riturum fundar. Samþykkt. 2.     Kjörnefnd afgreiðir kjörbréf og afhendir atkvæðaspjöld, skýrir stöðu mála varðandi stjórnarkjör og auglýsir eftir tillögum. Kjörnefnd, skipuð Dýrleifi Jónsdóttur, Emblu Guðmundsdóttur Umf. Reykdæla og Gerði Sigurðardóttur, Leikfélagi Selfoss og Leikfélaginu Sýni, afgreiddi kjörbréf og skýrði stöðu framboðsmála. 3.     Menningarstefna Bandalagsins lesin og rædd. Ása Hildur Guðjónsdóttir, Halaleikhópnum og stjórn Bandalagsins, las menningarstefnuna. Engar umræður. 4.     Staðfest inntaka nýrra félaga, félög tekin af félagaskrá. Ólöf Þórðardóttir, Leikfélagi Mosfellssveitar og ritari stjórnar, greindi frá hvaða félög hefðu sótt um inngöngu og hver væru á leið úr Bandalaginu. Úr Bandalaginu gengu Skagaleikflokkurinn, vegna skulda og Umf. Tálknafjarðar og Umf. Stafholtstungna að eigin ósk. Leikfélagið Skrugga, Leikdeild Umf. Gnúpverja og Áhugamannaleikklúbbur Grundarfjarðar höfðu sótt um inngöngu og fundurinn staðfesti ákvörðun stjórnar um að taka þau í Bandalagið. 5.     Fundargerð síðasta aðalfundar afgreidd. Fundargerðin samþykkt einróma. 6.     Skýrsla stjórnar. Þorgeir Tryggvason flutti skýrslu stjórnar fyrir leikárið 2010-2011: Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga í Mosfellssveit 30. apríl–1. maí 2011 I – stjórn Stjórn var þannig skipuð á...

Sjá meira

Sumarleiksýningar í Tjarnarbíó

Í júní mun Tjarnarbíó bjóða upp á tvær sprellfjörugar íslenskar leiksýningar. Þetta eru Hetja eftir Kára Viðarsson og Víking Kristjánsson, og Ferðasaga Guðríðar þar sem Þórunn Erna Clausen fer á kostum í splunkunýrri leikgerð af hinu rómaða leikriti Brynju Benediktsdóttur Ferðir Guðríðar. Báðar sýningarnar hafa fengið mikið lof gagnrýnenda en þær voru frumsýndar á síðasta ári. Sýningar verða eftirfarandi: Sunnudagur 19. júní (á ensku)Hetja kl. 16Ferðasaga Guðríðar kl. 20 Föstudagur 24. júní (á íslensku)Hetja kl. 16Ferðasaga Guðríðar kl. 20 Laugardagur 25. júní (á íslensku)Ferðasaga Guðríðar kl. 16Hetja kl. 20 Sunnudagur 26.júní (á ensku)Hetja kl. 16Ferðasaga Guðríðar kl. 20 Hetja...

Sjá meira

Vorstarf Leikfélags Selfoss

Aðalfundur Leikfélags Selfoss var haldinn í Litla leikhúsinu við Sigtún miðvikudaginn 11. maí. Var fundurinn léttur og skemmtilegur að vanda þar sem ýmis skemmtileg erindi voru borin upp og síðasta leikár reifað auk annarra venjulegra aðalfundarstarfa. Þau Íris Árný Magnúsdóttir og Stefán Ólafsson hættu í stjórn eftir nokkurra ára farsælt og öflugt starf og var þeim ítrekað þakkað góð og vel unnin störf í stjórn leikfélagssins. Kosin var ný stjórn í spennandi kosningum sem hefur skipt með sér verkum. Nýja stjórn skipa:Sigrún Sighvatsdóttir, formaðurF. Elli Hafliðason, varaformaðurSigríður Hafsteinsdóttir, ritariGerður Halldóra Sigurðardóttir, gjaldkeriSvanhildur Karlsdóttir, meðstjórnandi Varastjórn skipa:Erla Dan Jónsdóttir, Finnur...

Sjá meira

Sjálfstæðir sviðslistahópar hljóta 28 tilnefningar

Sjálfstæðir sviðslistahópar hljóta alls 28 tilnefningar til Grímuverðlaunanna í ár. Eins og undanfarin ár eru sjálfstæðir hópar með flestar tilnefningar í Leikskáld ársins eða 4 af 5. Einnig hljóta sjálfstæðir dansarar og danshöfundar fjölda tilnefninga í ár eða 8 af 11. Sjálfstæðir hópar eru með 4 af 5 tilnefningar í flokknum Barnasýning ársins. Af þeim hópum sem flestar tilnefningar fengu má nefna Shalala sem fékk 5 tilnefningar fyrir verk sitt Við sáum skrímsli, Pars pro toto með 4 tilnefningar og Ég og vinir mínir með 3 fyrir Verði þér að góðu. Aldrei óstelandi fær tvær tilnefningar í ár fyrir...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert