Verslun okkar er staðsett að Suðurlandsbraut 16, 108 Reykjavík og fastur opnunartími er frá 9.00-13.00 virka daga.
Við sendum í póstkröfu hvert á land sem er. Pantanir sem berast fyrir kl. 13.00 eru sendar samdægurs, annars næsta virkan dag. Aðildarfélög Bandalags íslenskra leikfélaga fá 20% afslátt af listaverði.
Leikhúsfarði (og fleira skemmtilegt)
Verslunin býður til sölu mikið úrval förðunarvara frá Grimas í Holllandi og Kryolan í Þýskalandi. Smellið hér til að skoða vörulistann. Hann inniheldur fleira en þig grunar!
Leikrit
Við eigum stærsta leikritasafn landsins. Pantaðu í síma 551 6974 eða hér
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
. Við verðleggjum leikritin eftir blaðsíðufjölda, 12 kr. blaðsíðan. Sendum í póstkröfu hvert á land sem er. Skoðið leikritalistann hér.
Allt fyrir andann
Nýlega kom út bókin Allt fyrir andann, Saga Bandalags íslenskra leikfélaga 1950-2000. Þar er rakin saga Bandalagsins í 50 ár en allt frá stofnun hefur hreyfingin verið öflugur bakhjarl leikfélaganna í landinu og tilkoma hennar blés nýju lífi í leikstarf úti um allt land. Greint er frá aðdraganda og stofnun Bandalagsins, upphafsárum þess og fyrstu verkefnum. Þá er þráðurinn rakinn í gegnum árin og áratugina og sýnt hvernig hreyfingin þróaðist með tímanum en sú þróun var hreint ekki alltaf átakalaus. Bjarni Guðmarsson sagnfræðingur og áhugaleikari tók saman. Bókin er seld á skrifstofu BÍL að Suðurlandsbraut 16, sími 5516974, netfang
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
, og í völdum bókabúðum. Verðið er 5.500 og við sendum hvert á land sem er.
Hárkollur
Við höfum til sölu töluvert úrval af hárkollum úr gervihári. Verð frá 1.000 til 7.500. Sendu okkur línu og láttu okkur vita hvernig kollu þig vantar, við svörum um hæl og segjum þér hvað hún kostar ef hún er til
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
. Umsjón og útleigu á hárkollusafni Bandalagsins annast Kristín Thors, símar 553 4540 og 864 0338. Hún á líka sjálf töluvert safn sem stendur aðildarfélögum Bandalagsins til boða á sömu kjörum.
Senda á:
|