Leikfélag Fjallabyggðar frumsýnir Með vífið í lúkunum eftir Ray Cooney sun. 29. mars. Verkið fjallar um John Smith sem er ósköp venjulegur leigubílstjóri sem óvart, alveg óvart, er giftur tveimur konum. Til að þær viti ekki hvor af hinni þarf hann að vera býsna vel skipulagður. Dag nokkurn lendir hann hinsvegar í slysi og þá riðlast skipulagið allt með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Til að reyna að bjarga málunum spinnast upp ótrúlegustu lygar og flækjur sem gera leikritið að eldfjörugum og bráðskemmtilegum farsa.
Átta leikarar taka þátt í sýningunni en leikstjóri er Eysteinn Ívar Guðbrandsson.
Sýnt er í Tjarnarborg Ólafsfirði og hefjast sýningar kl. 20.00. Frumsýning er einsog áður sagði fös. 27. mars en næstu sýningar eru annars sem hér segir:
3. sýning 31. mars
4. sýning 2. april
5. sýning 7. april
6. sýning 9. april
Miðaverð er 4.000 kr. en miðasala er í símum 8495384 Vibekka & 8650967 Kamilla.


