Leikstjórarnir fá handritin í hendurnar u.þ.b. sólarhring fyrir frumflutning, og fá þá einnig að vita hvaða rými þeir eru að vinna með og hvaða leikhóp. Þeir hafa svo daginn til að hanna uppsetninguna og finna til props, búninga eða hvað sem þeir vilja, og leysa út úr þeim áskorunum sem felast í handritinu, rýminu og/eða leikhópnum.
Um kvöldið, eða þremur klukkutímum fyrir frumflutning, fá leikstjórarnir svo að byrja að vinna með leikurunum og er það einnig í fyrsta sinn sem leikararnir vita hvaða verk þeir eru að fara að vinna og með hverjum. Þremur tímum seinna er svo útkoman sýnd og er ótrúlegt að verða vitni að því sem leysist úr læðingi.
Þannig ef þú hefur áhuga, endilega sendu inn handrit á spretturupp@gmail.com. Skilafrestur er til miðnættis mánudaginn 5. ágúst næstkomandi.
Meiri upplýsingar finnast á Fésbókarsíðu verkefnisins – https://www.facebook.com/pages/Uppsprettan/494644333926281
Listrænir stjórnendur Uppsprettunnar eru Jenný Lára Arnórsdóttir og Ingi Hrafn Hilmarsson.