Gamansöngleikur með ABBA-lögum á Breiðumýri.
Leikdeild Eflingar frumsýnir gamansönleikinn Stöngin inn, eftir Guðmund Ólafsson í félagsheimilinu á Breiðumýri í Reykjadal föstudaginn 23. febrúar klukkan 20:30. Leikstjóri er Vala Fannell og tónlistarstjóri Jaan Alavere.

Verkið gerist í litlu sjávarþorpi þar sem konur bæjarins ákveða að setja eiginmenn sína í kynlífsbann nema þeir hætti að horfa á enska boltann.

Sýningar:
Frumsýning – föstudagur 23. febrúar kl. 20:30
2. sýning – sunnudagur 25. febrúar kl. 17:00
3. sýning – fimmtudagur 1. mars kl. 20:30
4. sýning – föstudagur 2. mars kl. 20:30
5. sýning – föstudagur 9. mars kl. 20:30
6. sýning – laugardagur 10. mars kl. 18:00
7. sýning – sunnudagur 11. mars kl. 16:00

Miðaverð: Fullorðnir kr. 3000.- Börn 16 ára og yngri kr. 2200.- Eldriborgarar og öryrkjar kr. 2700,-
Félögum í Framsýn, Þingiðn og Starfsmannafélagi Húsavíkur gefst kostur á að fá afsláttarmiða hjá sínum félögum áður en þeir fara á leiksýningu og fá þannig 1000 kr. afslátt.

Dalakofinn verður með leikhúsmatseðil fyrir hópa (lágmark 6 manns) lambasteik og meðlæti, og kaffi og köku í eftirrétt á kr. 3900.- Einnig býður Dalakofinn 15% afslátt af matseðli fyrir leikhúsgesti.

Að venju verður Kvenfélag Reykdæla með kaffi- og vöfflusölu á sýningum.

Miðapantanir eru í síma 618-3945 eða á leikdeild@leikdeild.is