Tvær auka-aukasýningar á Heilsugæslunni verða á Café Catalinu í Kópavogi um helgina. Leikurinn hefur verið sýndur þrívegis á Catalinu og nú eru síðustu aukasýningar. Fyrri sýningin er föstudaginn 11. desember og sú seinni daginn eftir, laugardaginn 12. desember, báðar sýningarnar hefjast kl. 21.30. Takið eftir þetta eru síðustu sýningar á Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu í bili. Í janúar er svo fyrirhugað að sýna á norðurlandinu.

Við hrósum okkur af háum meðalaldri, þjónustu í hæsta gæðaflokki og frábærum læknum. En er kerfið eins gott og af er látið? Er það hugsanlega farið að vinna gegn tilgangi sínum? Er aukinni eftirspurn sjúkdóma svarað með meira framboði? Hvaða tilgangi þjónar góð heilsa? Metum við líf í magni eða gæðum?

Leikritið Heilsugæslan er samið af lækni, Lýð Árnasyni, og gefur áhorfandanum sýn inn í þetta völundarhús og það sem býr að tjaldabaki.

Heilsugæslan er hápólitískt leikrit og umfjöllunarefnið brennandi á íslenzku þjóðfélagi, ekki sízt núna, í skugga niðurskurðar. Heilsugæslan fyrir alla! Leikritið er gamanleikur og öll hlutverk eru í höndum tveggja leikara, þeirra Elfars Loga Hannessonar og Margrétar Sverrisdóttur. Sýningin tekur eina klukkustund.

Miðasala er hafin á Café Catalinu í Hamraborg Kópavogi. Miðasölusími er 554 2166 og miðaverðið það sama gamla góða aðeins 1.900 krónur.