Margverðlaunað meistaraverk John Logan verður frumsýnt á Litla sviðinu 21. september næstkomandi. Rauður er gríðarlega vel skrifað verk með sterkum persónum en varpar um leið upp sígildum spurningum um lífið og listina. Verkið var sýnt á West end og Broadway við fádæma undirtektir þar sem leikararnir Alfred Molina og nýstirnið Eddie Redmayne fóru með hlutverk Rothko og aðstoðarmanns hans, Ken. Guðrún Vilmundardóttir þýddi Rautt, Kristín Jóhannesdóttir leikstýrir, Jóhann Sigurðarson og Hilmar Guðjónssons fara með hlutverk Rothko og Ken.

Rautt er leikrit um einn áhrifamesta listamann tuttugustu aldarinnar, Mark Rothko, baráttu hans við sjálfan sig – eða öllu heldur við goðsögnina um sjálfan sig – og hinn eilífa ótta listamannsins við að verða úreltur. „Það er harmleikur fólginn í hverri pensilstroku“ sagði Mark Rothko um eigin verk. Hann var einn mikilvægasti málari 20. aldarinnar og tók að sér eitt stærsta verkefni listarsögunnar fyrir áður óþekkta upphæð. Þrátt fyrir þennan heiður sækja að honum efasemdir og innri átök brjótast fram í samskiptum hans við unga aðstoðarmanninn, Ken. Átökin eru ekki aðeins milli meistara og lærlings heldur fulltrúa nýrra tíma og hins helga konungs myndlistarinnar. Ólík viðhorf til lífsins takast á og um leið afhjúpast ævi aðstoðarmannsins; sorglegir atburðir fortíðar knýja dyra og átökin hafa óvæntar afleiðingar. Þótt báðir komi sárir úr því einvígi hafa þeir engu að síður unnið sigur, hvor á sinn hátt.

Rautt hefur sópað til sín verðlaunum víða um heim á síðustu árum. Meðal annars hlaut það hin virtu Tony verðlaun árið 2010 (alls 7 tilnefningar í mismunandi flokkum og 6 verðlaun). Rautt er gríðarlega vel skrifað leikrit með sterkum persónum, sígildum spurningum um lífið og óvæntum afhjúpunum. John Logan (f. 1961) hefur skrifað fjölmörg leikrit og kvikmyndahandrit og víða fengið fyrir þau verðlaun og viðurkenningar. Hann skrifaði m.a. handrit að kvikmyndunum The Aviator, Gladiator og Hugo sem allar hlutu tilnefningar til Óskarsverðlauna.

Leikmynd og búninga hannar Helga I. Stefánsdóttir, lýsingu annast Björn Bergsteinn Guðmundsson og hljóðmynd gerir Thorbjørn Knudsen.