Starfsfólk Borgarleikhússins lýkur upp dyrunum á laugardag, 29. ágúst kl 13 og býður í vöfflukaffi með fjörlegri dagskrá. Það verður líf á öllum sviðum og um allt leikhús. Gestir á öllum aldri geta upplifað töfra leikhússins, gægst baksviðs, farið í skoðunarferðir og  bragðað á ljúffengum vöfflum sem leikhússtjórinn Kristín Eysteinsdóttir mun reiða fram af myndarskap ásamt öðru starfsfólki. Leikarar, leikstjórar, hönnuðir og tæknifólk  verða við störf á öllum sviðum hússins; ýmist við æfingar eða sýningar eða til þess að svara spurningum sem brenna á forvitnum leikhúsgestum. Nýtt leikár Borgarleikhússins fer frábærlega af stað og allt útlit fyrir að það muni ekki gefa síðasta ári neitt eftir, sem var algert metár.

Hið árlega Opna hús Borgarleikhússins er haldið laugardaginn 29. ágúst á  milli kl kl 13-16. Þá geta gestir og gangandi skoðað leikhúsið og séð brot af þeim fjölmörgu sýningum sem frumsýndar verða á leikárinu. Allir ættu því að geta fundið eitthvað við sitt hæfi þegar leikhúsið dregur tjöldin frá nýju og glæsilegu leikári.

Meðal þess sem í boði verður er:

·       Atriði úr Billy Elliot  og Blæði frá Íslenska dansflokknum verða á stóra sviðinu.

·       Lalli töframaður, Óður og Flexa og Sönglist verða á litla sviðinu.

·       Opnar æfingar á Sókrates, Öldinni okkar , Hystory og Ati.

·       Skoðunarferðir verðareglulega yfir daginn og verður fólk leitt um króka og kima þessa stærsta leikhúss landsins. Þar verður baksvið skoðað, búningageymslur, æfingasalir, förðunardeild, smíðaverkstæði og margt fleira.

·       Leikhússtjórinn, Kristín Eysteinsdóttir ásamt öðru starfsfólki, mun bjóða upp á kaffi og ilmandi nýbakaðar vöfflur. Um 500 lítra af vöffludeigi þarf til.

·       Mamma mia-leikur  – veglegir vinningar

·       Ljósmyndahorn þar sem Lína Langsokkur og Herra Níels stilla sér upp fyrir myndartökur með yngstu gestunum

·       Búninga – og hárkollumátun við  Nýja sviðið.

·       Tæknifikt á svölunum.

·       Blöðrur og plaköt.

 Í forsal leikhússins verður fjölbreytt tónlistardagskrá ásamt Línu Langsokk og Herra Níels sem munu skemmta. Veislustjóri er Kenneth Máni. Vignir Þór Stefánsson og félagar spila, Þrjár basískar stíga á svið, fram koma Brynhildur Guðjónsdóttir, Jóhann Sigurðsson og Þórunn Arna Kristjánsdóttir og Hundur í óskilum – auk þess sem ýmsar óvæntar uppákomur verða því leikhúsið getur sprottið fram alls staðar!

Opið hús er orðinn fastur liður í menningarlífi Reykvíkinga. Siðurinn hófst þegar Leikfélag Reykjavíkur flutti í Borgarleikhúsið fyrir 20 árum síðan og hefur verið haldið í heiðri nær óslitið síðan. Borgarbúar kunna að meta daginn og flykkjast í leikhúsið til að kynna sér verkefni vetrarins. Aðsókn að Opnu húsi hefur alltaf verið góð og þúsundir manna flykkst í Borgarleikhúsið.

Allir eru velkomnir á opið hús í Borgarleikhúsinu laugardaginn 29. ágúst á milli kl. 13 og 16. – og að sjálfsögðu er ókeypis aðgangur.