Leikfélag Selfoss frumsýnir leikverkið Listin að lifa eftir Sigríði Láru Sigurjónsdóttur föstudaginn 25. október. Leikstjóri er Jónheiður Ísleifsdóttir.
Sýningin fjallar um vinina Dúu, Duddu og Didda og er þeim fylgt gegnum lífið nánast frá vöggu til grafar með öllu því sem líf þeirra hefur upp á að bjóða, í blíðu og stríðu. Fimm leikarar eru í uppsetningunni og spanna breitt aldursbil, koma úr ýmsum áttum og eru sumir að stíga sín fyrstu skref  meðan aðrir hafa mikla reynslu með leikfélaginu.
Fyrirhugaðar eru tíu sýningar:
Frumsýning Föstudagur 25. október kl. 20:00
Hátíðarsýning Sunnudagur 27. október kl. 17:00
3. sýning Föstudagur 1. nóvember kl. 20:00
4. sýning Laugardaginn 2. nóvember kl. 20:00
5. sýning Sunnudaginn 3. nóvember kl. 17:00
6. sýning Fimmtudaginn 7. nóvember kl. 20:00
7. sýning Föstudaginn 8. nóvember kl. 20:00
8. sýning Sunnudaginn 10. nóvember kl. 17:00
9. sýning Föstudaginn 15. nóvember kl. 20:00
10. sýning Laugardaginn 16. nóvember kl. 20:00 – Lokasýning
Miðasala fer fram á Tix.is og miðaverð er 3500 kr.
Við hvetjum alla til að koma í Litla leikhúsið við Sigtún og gleðjast með okkur.
Einnig má fylgjast með sýnigunni og leikfélaginu á samfélagsmiðlum:
https://www.facebook.com/leikfelagselfoss
https://www.instagram.com/leikfelag_selfoss/