Föstudaginn 17. febrúar verður frumsýnt nýtt íslenskt leikrit hjá Leikfélagi Mosfellssveitar í Bæjarleikhúsinu og hefst sýningin klukkan 20:00. Verkið heitir Í beinni og er eftir þá Hrafnkel Stefánsson og Nóa Kristinsson. Leikstjóri er Guðný María Jónsdóttir og samtals standa um 20 leikarar, hljóðfæraleikarar, tæknimenn og sviðsmenn að sýningunni.
Leikritið gerist í lokaþætti spjallþáttarins Í beinni sem stjórnað er af hinum stórskemmtilega Benna Gumm. Útsendingin gengur þó ekki átakalaust fyrir sig og hinar óvæntustu uppákomur setja svip sinn á atburðarásina. Einnig er í sýningunni skyggnst baksviðs, þ.s. við erum einnig í biðstofu gesta þáttarins. Þetta er bráðfyndið leikrit sem óhætt er að mæla með fyrir alla fjölskylduna!
Önnur sýning verður sunnudaginn 19.02. Sýnt verður næstu helgar á eftir á föstudögum og laugardögum og hefjast sýningar klukkan 20:00.