Möguleikhúsið hefur nú hafið sýningar á hinu vinsæla barnaleikriti “Langafa prakkara” sem byggt er á sögum Sigrúnar Eldjárns. Leikritið var fyrst sýnt á vegum Möguleikhússins á árunum 1999 til 2001 og urðu sýningar þá rúmlega 150 talsins. Bækur Sigrúnar Eldjárns um Langafa prakkara hafa um árabil notið mikilla vinsælda meðal yngstu lesendanna. Í þessari leikgerð er stuðst við bækurnar Langafi drullumallar og Langafi prakkari.
Í leikritinu segir frá lítilli stúlku, Önnu, og langafa hennar. Þó langafi sé blindur og gamall er hann alltaf tilbúinn að taka þátt í einhverjum skemmtilegum uppátækjum með Önnu litlu. Hann passar hana alltaf á daginn þegar pabbi hennar og mamma eru í vinnunni. Þá hefur hann nægan tíma til að sinna henni og þau gera ýmislegt skemmtilegt saman. Þau skoða mannlífið, baka drullukökur, veiða langömmur og fleira. Þetta er enginn venjulegur langafi …

Langafi og Anna eru leikin af þeim Bjarna Ingvarssyni og Aino Freyju Järvelä, leikstjóri og höfundur leikgerðar Pétur Eggerz, búninga gerir Katrín Þorvaldsdóttir, leikmynd er eftir leikhópinn og tónlist er gerði Vilhjálmur Guðjónsson.
 
Fyrsta sýningin á Langafa prakkara í Möguleikhúsinu við Hlemm verður sunnudaginn 4. febrúar kl. 14:00, en sýningum verður síðan fram haldið í leik- og grunnskólum.