Leikfélag Akureyrar frumsýnir þann 1. mars Kaktusinn eftir þýska mannréttindalögfræðinginn Juli Zeh. Þetta er ólíkindalegt verk þar sem fjallað er á spaugilegan hátt um ótta, öryggisfíkn, raunveruleika og skáldskap. Það er leikhópur Leikfélags Akureyrar sem fara með öll hlutverk sýningarinnar, enn hann skipa Aðalbjörg Árnadóttir, Anna Gunndís Guðmundsdóttir, Einar Aðalsteinsson og Hannes Óli Ágústsson. Ragnheiður Skúladóttir, leikhússtjóri LA, leikstýrir verkinu.
Ungur tyrknesk-ættaður lögregluþjónn, Kem, hefur aðstoðað leynilögreglumanninn Jochen við að handtaka meintan hryðjuverkamann. Hryðjuverkamaðurinn sem rekur rætur sínar til Kaliforníu og gengur undir nafninu Carnegie Gigantae er hins vegar grunsamlega líkur stórum kaktusi. Jochen heldur því fram að hann hafi aflað gagna sem sanni, svo ekki verði um villst, að Kaliforníubúinn umræddi sé hættulegur glæpamaður og hefur því samband við yfirmann sinn, frú Schmidt, til þess að láta hana vita af handtökunni. Þeir félagarnir reyna síðan ýmsar hefðbundar yfirheyrsluaðferðir, en hinn ókunni er þögull sem gröfin. Skömmu síðar rekst Súsí, ung lögreglukona, inn á skrifstofuna, og verður þar með hlutaðeigandi að málinu, og þegar frú Schmidt birtist tekur atburðarásin óvænta og afdrifaríka stefnu.
Tinna Ottesen hannar leikmynd og búninga, Jóhann Bjarni Pálmason hannar ljós og Þóroddur Ingvarsson hljóðmynd.