Hljómsveitin Eva með þær Sigríði Eir Zophoníasardóttur og Jóhönnu Völu Höskuldsdóttur innanborðs semja nýja tónlist við verkið og taka þátt í uppfærslunni með lifandi tónlistarflutningi. Með hlutverk kerlingarinnar fer María Pálsdóttir sem eftir nokkuð hlé stígur aftur á fjalirnar hjá LA. Auk hennar leika Aðalbjörg Árnadóttir, Hannes Óli Ágústsson, Hilmir Jensson og þrettán nemendur úr Leiklistarskóla Leikfélags Akureyrar í sýningunni. Egill Ingibergsson hannar leikmynd og lýsingu, Helga Oddsdóttir hannar búninga, Ingibjörg Huld Haraldsdóttir er aðstoðarleikstjóri og Gígja Hólmgeirsdóttir aðstoðarkona er í starfsnámi hjá LA.
Úr formála Gullna hliðsins:
Hér verður grýttur götuslóði rakinn,
og gömul kynslóð upp frá dauðum vakin,
svo þeir, sem ungir eru, megi skilja,
hið innra stríð, sem liðnir tímar dylja.
Því þar á trú vor, ef að líkum lætur,
í leyndu djúpi sínar meginrætur.
Aldirnar líða. Kynslóðirnar hverfa.
En hvað er það, sem börnin erfa?
Davíð Stefánsson