Mánudaginn 21. apríl kl. 20 munu Leiklistarsamband Íslands og Leiklistardeild Listaháskóla Íslands standa fyrir fyrirlestri um stöðu höfundar í nútímaleikhúsi á Kaffi Sólon, Bankastræti 7a, 2. hæð. Fyrirlesarar eru Charlotte Böving, leiklistarkona og Jón Atli Jónasson, leikskáld.

Höfundurinn er flókið fyrirbæri þegar kemur að leikhúsi. Leikskáldið sat lengi vel eitt að þeim heiðri að teljast höfundur sviðsins og í enn dag kynna leikhúsin verkefni undir heiti leikskáldsins. Á tuttugustu öld óx hins vegar leikstjóranum fiskur um hrygg og gerði harða atlögu að veldissprota leikskáldsins. Á undanförnum áratugum hafa síðan margir leikhúslistamenn og -hópar farið þá leið að útiloka leikskáldið (og textann sjálfan að miklu leyti) og jafnvel hafnað hugmyndinni um leikstjóra sömuleiðis. Í ljósi þeirra fjölbreyttu leiða sem til eru til að semja leiksýningu er þarft að spyrja um stöðu, hlutverk og eiginleika höfundarins í leikhúsi samtímans.
 
Vorfyrirlestrar Leiklistarsambands Íslands og Leiklistardeildar Listaháskóla Íslands taka á hlutverki, aðferðum og fagurfræði sviðslistanna og eru öllum opnir, jafnt fagfólki sem áhugafólki um sviðslistir.

{mos_fb_discuss:3}