Kómedíuleikhúsið kemur nú tvíelft til baka eftir síðasta samkomubann og  ætlar sér að frumsýna Bakkabræður með pompi og prakt þann 22. maí í  Kómedíuleikhúsinu í Haukadal, Dýrafirði. Þetta er önnur tilraun  leikhússins til að frumsýna verkið enda hvern hefði órað fyrir að eitthvað gæti farið úrskeiðis við að frumsýna verk um klaufabárðana Bakkabræður þann 1. apríl eins og upphaflegas var áætlað?

Lögin í sýningunni eru sungin af Diddú við tónlist sem Björn Thoroddsen,  gítarleikari, samdi og flytur. Marsibil G. Kristjánsdóttir hannar  ævintýraheim leiksýningarinnar og gerir brúðurnar sömuleiðis. Leikari og þjónn brúðanna er Elfar Logi Hannesson, sem einnig er höfundur verksins  ásamt Sigurþóri A. Heimissyni sem jafnframt leikstýrir. Upplýsingar um sýningar í allt sumar og miðasala á Tix.is