Leikfélag Sauðárkróks  fagnar á þessu ári 80. ára afmæli en 9 janúar á þessu ári eru 80 ár síðan félagið var endurstofnað.  Af því tilefni er planið að heimsfrumsýna nýtt verk 7. maí næstkomandi sem heitir Á frívaktinni. Höfundur þess og leikstjóri er Pétur Guðjónsson.

Sögusviðið er sjávarþorp, einhvers staðar á Íslandi á tímum síldaráranna þegar síldin var duttlungarfull og hafði mikil áhrif á lífsgæðin í sjávarþorpunum. Sagan gerist á þeim tímum þegar síldin er að hverfa frá Íslandsströndum. Daníel er tvítugur sendill hjá Kaupfélaginu en dreymir um að komast á sjó. Hann hefur reynt að komast að hjá Stjána bláa, skipstjóra á Aðalsteini Jónssyni en hefur ekki átt erindi sem erfiiði. En hann þráir ekkert heitar en að komast á sjó, verða ríkur og koma undir sig fótunum. Hann hefur engan tíma fyrir konur og ætlar sko ekkert að stofna fjölskyldu, enda er það fjölskyldumynstur sem hann þekkir ekki svo gæfulegt. Móðir hans er kölluð Gerða tvöfalda og pabbi hans, Siggi lamaði er búinn að gefast upp á lífinu. En örlögin grípa í taumana og Daníel fær tækifæri á sjónum en örlögin spinna þráðinn einnig þegar hann kynnist Guðrúnu, nýju stúlkunni í plássinu. Þau fella hugi saman en það eru ýmis öfl sem reyna að koma í veg fyrir það. Daníel kynnist því ýmsu mótlæti, þrátt fyrir að hafa komist á sjóinn. Sagan snertir því ýmsa strengi í gleði og sorg, er í senn falleg og fjörug, með þekktum sjómannalögum eins og Ship og hoj, Einsi kaldi, Þórður sjóari, Á sjó, Síldarstúlkan og Allt á floti, ásamt fleiri þekktum lögum.

Alheimsfrumsýning sýningarinnar er föstudaginn 7 maí kl. 20.00. Æfingargferlið og aðdragandinn að sýnimngunni hefur verið óvenju  langur þar sem var byrjað á verkinu í fyrra.  Miðapantanir eru í s. 849-9434.