Á morgun fimmtudag, kl. 17:30, verður haldinn opinn fundur í Tjarnarbíó um dagskrá leikársins 2014-2015.
Leikrit, dansverk, tilraunaverkefni og vinnustofur listamanna hafa nú verið bókuð fyrir næsta leikár og mynda glæsilega heild sem Tjarnarbíó er stolt af að tilkynna. Sjá nánar hér fyrir neðan.
Á fundinum mun framkvæmdastjóri hússins, Guðmundur Ingi Þorvaldsson, fara yfir þau verk sem sett verða á fjalirnar. Einnig verða á kynningarfundinum fulltrúar frá öllum hópum og listamönnum sem eru hluti af dagskránni.
Fundurinn er öllum opinn og eru fréttamenn og ljósmyndarar sérstaklega velkomnir.Eftir fundinn, kl. 20:00, verður fjórði Arty Hour haldinn á kaffihúsinu. Á Arty Hour kynna ýmsir listamenn verk sín í vinnslu. Á fimmtudaginn koma fram:
Samferða er hópur sem mun segja okkur frá opinni þjálfun í líkamlegri spunavinnu sem þau standa fyrir í hverri viku
Ráðhildur kynna verkefnið Golden Age
Auðlind með nýtt leikverk leikhópsins, Róðarí
Leikhópurinn Glenna kynnir nýja leikritið Útlenski drengurinn
Nikhil Nathan Kirsh segir okkur hvernig stemmingin er á vinnustofunni í Svítunni
Dagskrá vetrarins 2014-2015
Leikhópurinn Auðlind með leikritið Róðarí
Leikhópurinn 10 fingur leikverkið Lífið – leiksýning um dauðann
Leikhópurinn Glenna með verkið Útlenski drengurinn
Óskabörn ógæfunnar með verkin Galdra-Loftur og Nóttin var sú ágæt ein
Möguleikhúsið með leikverkin Eldbarnið, Hávamál og Aðventu
Leikhópurinn 16 elskendur með verkið Persónur og leikendur
Þíbylja/Svipir með verkið Endatafl
Arnar Dan Kristjánsson með verkin Landsliðið á línunni og Samsuða stórveldanna
Álfrún Örnólfsdóttir með einleikinn Kamelljón
Frystiklefinn með verkið Trúðleikur
Leikhópurinn Á senunni með leikritið Ævintýrið um augastein
Hópurinn Dance for me með verkið Petra
Vinnustofur sem enda með sýningu
Hópurinn Spun með verkið Beyond the Bark
Listahópurinn Vinnslan með verkið Strengir
Leifur Þór Þorvaldsson með verkefnið Draumfarir
Shalala eru með tvö verkefni: To the bone og Fórn
Steinunn Ketils og danshópur með verkið Nordic Blondes
Spindrift Theatre með verkið Lísa í undralandi
Ásrún og Alex með verkið Popstar Dance
Hópurinn Ráðhildur með verkið Golden Age
Brite Theatre með verkið Ríkharður 3. fyrir eina konu