Á Nýja sviði Borgarleikhússins verður nýtt íslenskt leikrit, Fýsn eftir Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur Backmann, frumsýnt föstudaginn 12. september. Leikritið vann leikritasamkeppnina „Sakamál á svið“ sem LR stóð fyrir árið 2006. Marta Nordal þreytir frumraun sína sem leikstjóri en þær Þórdís hafa unnið að uppsetningunni um nokkurt skeið. Að auki hefur Þórdís unnið að þróun þess í samstarfi við leikhús í Ástralíu og Bretlandi.

Lífið virðist dans á rósum hjá ungum nýgiftum hjónum en fyrr en varir þurfa þau að horfast í augu við ógnvekjandi leyndamál. Hversu langt eru þau reiðubúin að ganga til að bjarga hjónabandinu og ástinni? Erfiðustu yfirheyrslurnar í lífinu eru ekki framkvæmdar af lögreglu, heldur ástvinum. Versti dómarinn er eigin samviska, og ljótustu glæpirnir eru þeir sem aldrei eru tilkynntir. Spennandi og áleitið verk um svartnætti mannlegs eðlis, örvæntingu, lygar og þrár. Hversu vel þekkir maður maka sinn í raun?
 
Fýsn er sigurverk leikritasamkeppninnar "Sakamál á svið" sem LR stóð fyrir árið 2006. Verkið var valið úr hópi rúmlega þrjátíu aðsendra leikrita. Fýsn er síðasta verkið í þríleik eftir Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur Bachmann sem óhætt er að kalla eitt af athyglisverðustu leikskáldum af yngri kynslóðinni. Fyrsta verk þríleiksins, Brotið, var sýnt í Hafnarfjarðarleikhúsinu 2005, og í kjölfarið kom Hungur, sem var sýnt á litla sviði Borgarleikhússins 2006.
 
Höfundur: Þórdís Elva Þorvaldsdóttir Backmann
Leikstjóri: Marta Nordal
Leikmynd og búnngar:Rebekka A. Ingimundardóttir
Tónlist: Elísabet Indra Ragnarsdóttir
Ljós: Þórður Orri Pétursson
Hljóð: Elísabet Indra Ragnarsdóttir
Sýningarstjórn: Chris Astridge
Leikarar: Sara Dögg Ásgeirsdóttir Björn Ingi Hilmarsson Víðir Guðmundsson Theodór Júlíusson

{mos_fb_discuss:2}