Í ár er Lab Loki 25 ára. Á þeim tímamótum býður hann til stefnumóts og frumsýninr í Tjarnarbíó fimmtudaginn 16. mars kl. 20:30!

Tveir gamlir vinir á sjötugsaldri standa á tímamótum og leikhópurinn þeirra Lab Loki á afmæli.

Endastöð – Upphaf er sviðslistaverk sem hófst í „Vinnubúðum sveina í skammdeginu“ á Tenerife en þar fóru viðburðir fram ýmist á víðavangi eða veraldarvefnum. Eftir heimkomuna lentu þeir í „burn outi“ og kölluðu þá til liðsauka, dóttur annars þeirra, sem tók að sér að vera listrænt Viagra fyrir gömlu mennina.

Um sýninguna:

Endastöð – Upphaf er sviðslistaverk sem fjallar um hina óverðskulduðu þrenningu: upphafið, ástina og dauðann.

Persónur á tímamótum eiga stefnumót, bjóða til veislu og bregða á leik.

Margs ber að minnast, mörgu ber að fagna og margt ber að kveðja, því: „Svo mörgum bræðra vorra varð þetta að dýpstu hvöt lífs þeirra: að komast burt“

Velkommen til Lab Loki´s gæstebud!

Þáttakendur:

Direttore Absoluto: Rúnar Guðbrandsson.

Actoro Primo: Árni Pétur Guðjónsson

Attrice Prima: Aðalbjörg Árnadóttir

Actoro Giovane: Kjartan Darri Kristjánsson

Lighting design e della tecnologia: Actoro Giovane

Il costume principale e visual design:  Filippia Elísdóttir

Video artista e supporto generale: Guðbrandur Loki Rúnarsson og Pétur Geir af Draugsætt

Caposquadra: Davíð Freyr Þórunnarson.

Hér er linkur á facebook síðu verkefnisins. Þar eru myndbönd og myndir úr vinnubúðunum. https://www.facebook.com/Endastod/