Athyglisverðasta áhugaleiksýning
Fulltrúi dómnefndar Þjóðleikhússins kom á aðalfund Bandalags ísl. leikfélaga þann 7. maí og tilkynnti niðurstöðu dómnefndar. Það var Stúdentaleikhúsið í Reykjavík með sýninguna Þú veist hvernig þetta er sem varð hlutskarpast og óskar Leiklistarvefurinn félaginu innilega til hamingju. Val Þjóðleikhússins á athyglisverðustu áhugaleiksýningu leikársins hefur nú farið fram tólfta leikárið í röð. Tólf leikfélög sóttu eftir að koma til greina við valið með alls fjórtán sýningar. Dómnefnd Þjóðleikhússins í ár var skipuð Tinnu Gunnlaugsdóttur þjóðleikhússtjóra, Hlín Agnarsdóttur, leiklistarráðunauti Þjóðleikhússins og Þórhalli Sigurðssyni leikara og leikstjóra við Þjóðleikhúsið. Eftirtalin leikfélög sóttu um með þessar sýningar: Stúdentaleikhúsið með Þú veist hvernig þetta er eftir hópinn og leikstjórann Jón Pál Eyjólfsson Ungmennafélagið Íslendingur með Bláa hnöttinn eftir Andra Snæ Magnason í leikstjórn Björns Gunnlaugssonar Leikfélag Mosfellssveitar með Peysufatadaginn eftir Kjartan Ragnarsson í leikstjórn Arnar Árnasonar Leikfélag Kópavogs og Hugleikur með Memento mori eftir Hrefnu Friðriksdóttur í leikstjórn Ágústu Skúladóttur Skagaleikflokkurinn með Járnhausinn eftir þá bræður Jón Múla og Jónas Árnason í leikstjórn Helgu Brögu Jónsdóttur Leikfélag Selfoss með Náttúran kallar sem var spunnin af hópnum í leikstjórn Sigrúnar Sólar Ólafsdóttur Hugleikur með Patataz eftir Björn Sigurjónsson í leikstjórn Bergs Þórs Ingólfssonar Leikfélag Mosfellssveitar með Ævintýrabókina eftir og í leikstjórn Péturs Eggerz Leikfélagið Grímnir með Fiðlarann á þakinu eftir Joseph Stein og Jerry Bock í leikstjórn Ingunnar Jensdóttur Leikfélag Vestmannaeyja með Makalausa sambúð eftir Neil Simon í leikstjórn Ásgeirs Sigurvaldasonar Leikfélag...
Sjá meira


