Tíu eftirminnileg kvöld
Góð leiksýning gleymist ekki svo glatt. Reyndar geymast verulega vondar sýningar jafn lengi í minninu, illu heilli. En allavega, í tilefni af þessum gagnrýnendavef ákvað ég að líta um öxl og rifja upp tíu sýningar sem lifa í minninu af fyrrnefndu ástæðunni. Tíu eftirminnilegustu kvöld mín í íslensku áhugaleikhúsi (í stafrófsröð sýninga): BLÓÐ HINNAR SVELTANDI STÉTTAR Höfundur: Sam Shepard Leikstjóri: Viðar Eggertsson Leikfélag Hafnarfjarðar 1991-92 MÖGNUÐ uppfærsla á krefjandi verki. Firnasterkur leikhópur og drjúgur hluti hans að stíga sín fyrstu skref á leiksviði, sem erfitt var að trúa að gæti verið. Sýning sem staðfesti þann grun minn að oss amatörum er ekkert ómögulegt. DÝRIN Í HÁLSASKÓGI Höfundur: Torbjörn Egner Leikstjóri: Stefán Jónsson Leikfélag Flensborgarskóla 1999-?2000 ÓTRÚLEGA snjöll endurtúlkun á verki sem allir kunna utanað og er því kjörinn vettvangur fyrir tilraunir. Leikið í töffaralegum “Pulp Fiction” stíl og skógurinn orðinn borgarfrumskógur nútímans. Mikki refur hefur aldrei þessu vant alla samúð áhorfenda, lúserinn sem semur sig ekki að háttum fjöldans og hlýtur því að farast. Snilldarlegur umsnúningur án þess að nokkru væri breytt af texta. GRÆNJAXLAR Höfundur: Pétur Gunnarsson Leikstjóri: Arnheiður Ingimundardóttir Leikklúbburinn Saga 1987?88 AF þeim ófáu leiksýningum sem ég hef séð um æfina hefur þessi komist næst því að springa af leikgleði. Ævintýraleg þroskasaga fjögurra krakka úr pollagalla í fullorðinsföt með viðkomu í fermingarbúningum. Brjálaður hraði og frábær leikur á öllum póstum að viðbættum pottþéttum tónlistarflutningi. “Við skýin...
Sjá meira


