Author: lensherra

Leikdeild UMF Biskups- tungna æfir Blessað barnalán

Nú standa yfir æfingar á leikritinu Blessað Barnalán eftir Kjartan Ragnarsson hjá Leikdeild ungmennafélags Biskupstungna.  Leikstjórn er í höndum Gunnar Björns Guðmundssonar en hann leikstýrði einnig síðasta verki leikdeildarinnar, Góðverkin kalla eftir Ármann Guðmundsson Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvasson, sem fékk mjög góða dóma og mikla aðsókn.   Blessað barnalán segir frá Þorgerði, eldri konu austur á fjörðum, sem ofbýður svo hve uppkomin og brotflutt börn hennar sína henni mikið afskiptaleysi að hún lætur senda þeim skeyti um að hún sé látin. Það er eins og við manninn mælt, afkomendurnir eru mættir til að innheimta arfinn… Leikarar í Blessuðu barnaláni eru tólf talsins, en að sýningunni koma rúmlega tuttugu manns.  Frumsýning er áætluð föstudaginn 24. febrúar í félagsheimilinu Aratungu. Á myndinni má sjá vinnu við...

Sjá meira

Maríubjallan frumsýnd hjá LA

Fimmtudaginn 16. febrúar verður leikritið Maríubjallan frumsýnt í Rýminu, nýju leikhúsi Leikfélags Akureyrar. Maríubjallan er kraftmikið og magnað nútímaverk eftir Vassily Sigarev. Leikritið er sýnt í Rýminu sem er nýtt leikhús Leikfélags Akureyrar sem kemur til viðbótar við starfsemi leikhússins í Samkomuhúsinu.  Rýmið, sem er til húsa að Hafnarstræti 73, er svartur kassi og þar er hægt að staðsetja uppsetningar á ólíka vegu.   Dima er 19 ára. Hann býr í blokk við hliðina á kirkjugarðinum, þaðan sem hann stelur legsteinum og selur. Á morgun hefur hann herþjónustu en í kvöld heldur hann vinum sínum kveðjupartý. Þangað koma vinir hans Slavik og Arkasha auk stúlknanna Leru og Júlkua. Á einu kvöldi fáum við magnaða innsýn í líf persónanna, kynnumst sorgum þeirra og þrám. Í ömurlegum aðstæðum er að finna allt litróf mannlegra tilfinninga og hver um sig hefur fundið sína leið til að lifa af. Vassily Sigarev er talinn eitt fremsta leikskáld nýrrar kynslóðar í Evrópu og hefur hlotið fjölda verðlauna á síðastliðnum misserum.  Meðal annarra verka hans eru Plasticine og Svört mjólk sem bæði voru frumsýnd í Royal Court leikhúsinu í London. Það síðastnefnda var einnig sýnt í Þjóðleikhúsinu fyrir skömmu. Árni Bergmann þýddi verkið úr rússnesku en Jón Páll Eyjólfsson er leikstjóri sýningarinnar. Hann var tilnefndur til menningarverðlauna DV í fyrra fyrir leikstjórn og gagnrýnandi Morgunblaðsins útnefndi hann „mann ársins í íslensku leikhúsi”. Maríubjallan er önnur uppsetning...

Sjá meira

Glæpir og góðverk

Nú eru að hefjast sýningar hjá leikfélaginu Snúður og Snælda á leikritinu „Glæpir og Góðverk” sem er gamansamur krimmi. Leikritið er byggt á verki Anton Delmer, Don´t utter a note, þýtt og staðfært af Sigrúnu Valbergsdóttur. Leikstjóri er Bjarni Ingvarsson. Frumsýnt verður sunnudaginn 12. feb. kl. 14.00.  Sýningar verða alla sunnudaga og miðvikudaga kl. 14.00 í...

Sjá meira

Stuttverkahátíðin Margt smátt – Opið fyrir umsóknir

Stuttverkahátíðin Margt smátt verður haldin í Borgarleikhúsinu 5. maí 2006 í tengslum við aðalfund Bandalags íslenskra leikfélaga sem haldinn verður í Félagsheimili Seltjarnarness 6. og 7. maí 2006. Hátíðin er opin öllum aðildarfélögum Bandalags íslenskra leikfélaga. Umsóknareyðublöð eru nú tiltæk hér vefnum. Stuttverkahátíðin Margt smátt verður haldin í Borgarleikhúsinu 5. maí 2006 í tengslum við aðalfund Bandalags íslenskra leikfélaga sem haldinn verður í Félagsheimili Seltjarnarness 6. og 7. maí 2006. Sækja þarf um fyrir 1. apríl á umsóknareyðublöðum sem nálgast má með því að smella á Margt smátt grímuna hér til hægri. Þann 5. apríl verður svo opinberað hvaða...

Sjá meira

Ronja Ræningjadóttir frumsýnd í Borgarleikhúsinu

Leikritið um Ronju Ræningjadóttur verður frumsýnt á Stóra sviði  Borgarleikhússins næstkomandi sunnudag, 12. febrúar.  Sagan um Ronju er eftir Astrid Lindgren og segir frá ræningjadótturinni sem býr með foreldrum sínum og ræningjahópi í Matthíasarskógi. Leikstjóri er Sigrún Edda Björnsdóttir, sem fór með hlutverk Ronju þegar leikritið var síðast sýnt í Borgarleikhúsinu, fyrir tólf árum síðan. Í skóginum kynnist Ronja Birki, syni annars ræningjaforingja og erkióvinar Matthíasar, og með þeim tekst djúp vinátta, sem fordæmd er af foreldrum þeirra. Saman flýja þau því að heiman, hafast við í Bjarnarhelli og glíma við rassálfa, grádverga, skógarnornir og aðrar furðuverur. Þetta er saga um vináttu og hugrekki en þó fyrst og fremst kærleika.   Arnbjörg Hlíf Valsdóttir leikur Ronju og Friðrik Friðriksson leikur vin hennar Birki Borkason. Foreldra Ronju, þau Matthías og Lovísu, leika Þórhallur Sigurðsson (Laddi) og Sóley Elíasdóttir. Eggert Þorleifsson leikur öldunginn Skalla-Pétur. Með önnur hlutverk fara: Björn Ingi Hilmarsson, Davíð Guðbrandsson, Ellert A. Ingimundarson, Gunnar Hansson, Halldór Gylfason, Hildigunnur Þráinsdóttir, Hinrik Þór Svavarsson, Kjartan Bjargmundsson, Oddur Bjarni Þorkelsson, Orri Huginn Ágústsson, Tryggvi Gunnarsson, Valur Freyr Einarsson og Þór Tulinius. Auk þeirra taka 10 börn þátt í sýningunni sem skipta með sér 5 hlutverkum, einnig koma við sögu fjöldinn allur af rassálfum, skógarnornum og öðrum furðuverum. Tónlist er fyrirferðamikil í leikritinu, og hún er eftir danska tónlistarmanninn Sebastian, en tónlistarstjóri er Karl Olgeirsson. Leikmynd og búninga hannar Sigurjón Jóhannsson og...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 9:00 — 13:00, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Vörur

Nýtt og áhugavert