Frumsýning á Átta konum í Þjóðleikhúsinu
Þann 31. mars verður gamanleikurinn Átta konur eftir Robert Thomas, í þýðingu og aðlögun Sævars Sigurgeirssonar, frumsýndur á Stóra sviði Þjóðleikhússins. Leikstjóri er Edda Heiðrún Backman en um tónlistarstjórn sér Samúel J. Samúelsson. Verkið er “glæpsamlegur gamanleikur”, þar sem átta leikkonur leiða okkur inn í kvennaheim, fullan af óvæntum atburðum, ógnum og gríni. Þeim til fulltingis verður hinn þekkti látbragðsleikari Kristján Ingimarsson, sem kemur sérstaklega frá Danmörku til að taka þátt í sýningunni. Áhorfendur mega eiga von á því að leikkonurnar bresti í dans og söng þegar minnst varir. Átta villtar konur og einn látbragðsleikari fara hamförum á Stóra sviðinu í vor! Fögur eiginkona, tvær ungar og óstýrilátar dætur, aðþrengd mágkona, gráðug tengdamamma, dularfull ráðskona og kynþokkafull þjónustustúlka. Húsbóndinn sjálfur liggur sofandi í rúmi sínu uppi á lofti. Eða hvað? Þegar sjö villtar konur eru samankomnar og sú áttunda bætist í hópinn getur allt gerst! Glæpsamlegur gamanleikur með söngvum og dansi! Franska leikskáldið Robert Thomas (1927-1989) var einkum þekktur fyrir það að tvinna saman með góðum árangri form sakamálaleikrita og léttra gamanleikja. Þegar leikritið Átta konur var sýnt í París árið 1961 hlaut það leiklistarverðlaunin Prix du Quai des Orfèvres og var leikið við miklar vinsældir. Franski leikstjórinn François Ozon vann geysivinsæla kvikmyndagerð verksins árið 2002, þar sem margar af fremstu leikkonum Frakklands fóru á kostum. Sævar Sigurgeirsson hefur unnið aðlögun verksins og samið nýja söngtexta. Sævar hefur samið...
Sjá meira