Author: lensherra

Aðalfundur 6. og 7. maí 2006

Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga verður haldinn í Félagsheimili Seltjarnarness 6. og 7. maí 2006. Dagskrá: Laugardagur 6. maí        kl   09:00        Aðalfundur settur                                         –    12:00        Hádegisverður                                         –    13:00        Gagnrýni á sýningar á stuttverkahátíð                                         –    14.00        Framhald aðalfundar                                         –    17:00        Fundarhlé                                         –    20:00        Hátíðakvöldverður í Félagsheimilinu                                                               Skemmtidagskrá og samvera Sunnudagur 7. maí         –    09:00        Framhald aðalfundar og fundarslit                                        –    13:00        Hádegisverður og heimferð Samhliða aðalfundi fer fram sýning á leikskrám og veggspjöldum leikársins 2005-2006. Val Þjóðleikhússins á Athyglisverðustu áhugasýningu leikársins verður að venju kynnt á hátíðakvöldverðinum. Þið sem enn eigið eftir að sækja um gerið það sem allra fyrst. Umsóknareyðublöð má nálgast á forsíðu www.leiklist.is. Þátttökugjald er kr. 6.500 á hvern aðalfundarfulltrúa. Innifalið er; standandi kaffi allan fundartímann, hádegisverður á laugardag og sunnudag, meðlæti með kaffi seinni hluta laugardags og fyrri hluta sunnudags, hátíðarhlaðborð laugardagskvöld, ball...

Sjá meira

Með vífið í lúkunum á Sauðárkróki

Sunnudaginn 30. apríl frumsýnir Leikfélag Sauðárkróks farsann Með vífið í lúkunum eftir Ray Cooney. Leikstjóri er Þröstur Guðbjartsson en hann hefur áður leikstýrt þremur leikritum fyrir Leikfélag Sauðárkróks, Bláa hnettinum, Ertu hálf-dán? og Síldin kemur og síldin fer. Sunnudaginn 30. apríl frumsýnir Leikfélag Sauðárkróks farsann Með vífið í lúkunum eftir Ray Cooney. Leikstjóri er Þröstur Guðbjartsson en hann hefur áður leikstýrt þremur leikritum fyrir Leikfélag Sauðárkróks, Bláa hnettinum, Ertu hálf-dán? og Síldin kemur og síldin fer.   Með vífið í lúkunum fjallar um John Smith sem er ósköp venjulegur leigubílstjóri sem óvart, alveg óvart, er giftur tveimur konum.  Til...

Sjá meira

Síðustu sýningar á Glæpur gegn diskóinu

Aðeins eru tvær sýningar eftir Glæpur gegn diskóinu eftir Gary Owen sem Steypibaðsfélagið Stútur hefur að undanförnu sýnt á Nýja sviði Borgarleikhússins. Sú fyrri er föstudaginn 28. apríl en sú seinni föstudaginn 5. maí. Aðeins eru tvær sýningar eftir Glæpur gegn diskóinu eftir Gary Owen sem Steypibaðsfélagið Stútur hefur að undanförnu sýnt á Nýja sviði Borgarleikhússins. Sú fyrri er föstudaginn 28. apríl en sú seinni föstudaginn 5. maí. Það er fimmtudagskvöld, og þrír strákar reyna að skera á böndin sem  hafa haldið aftur af þeim frá fæðingu, með hjálp (og hindrun) vímuefna,  kvenfólks og ómótstæðilegrar tónlistar. Dauður köttur, diskókvöld...

Sjá meira

Norrænu leikskáldaverðlaunin 2006

Norræna leikhúsráðið (Nordisk Teaterunion) ákvað á fundi sínum í Kaupmannahöfn þann 23. apríl að Kari Hotakainen frá Finnlandi hlyti norrænu leikskáldaverðlaunin fyrir leikritið Punahukka (Border Crossings/Arvelige Faktorer). Verðlaunin eru veitt á tveggja ára fresti og í ár var Jón Atli Jónasson tilnefndur fyrir Íslands hönd fyrir leikrit sitt Brim. Danmörk tilnefndi Jokum Rohde fyrir Pinocchios aske, Svíþjóð Mathias Andersson fyrir Sex, droger og våld og Noregur Jon Fosse fyrir Svevn. Verðlaunin verða veitt við setningu Norrænna leiklistardaga í Tívolí í Kaupmannahöfn þann 31. júlí nk. Úrskurður dómnefndar er á þessa leið: Den finske dramatiker Kari Hotakainen har skrevet et scenespil af meget høj kvalitet. Teksten er flerdimensional, fuld af dybde i dens spændende og civilisationskritiske samfundsskildring og personerne fremstilles fulde af humor og ironi. Hotakainen bemægtiger sig sine tilskuere med sit sprog og sine replikker, der er ironiske og morsomme samtidigt med at det gør ondt Hvad sker der når konduktøren på toget mellem Helsingfors og St. Petersborg ser Jesus på grænsestationen?   Bliver der hermed vendt op og ned på livets grundlag? Det er alvorlige temaer dramatikeren præsenterer os for. Scenespillet ”Punahukka” er et overflødighedshorn af temaer; som moralens relativitet, det lette ved at gøre andre ondt, og det svære ved at gøre det gode. Eller almindelige menneskers tilladte stræben efter at stifte en almindelig familie og leve et almindeligt liv. Og naturligvis Finlands og Ruslands altid lige...

Sjá meira

Litli Kláus og Stóri Kláus á Seltjarnarnesi

Leiklistarfélag Seltjarnarness frumsýnir leikritið Litli Kláus og Stóri Kláus í Félagsheimili Seltjarnarness laugardaginn 29. apríl kl. 14:00. Þetta er fjörugt fjölskydustykki fyrir unga jafnt sem aldna, eftir Lisu Tetzner byggt á sögu H.C.Andersen. Leikstjóri er Bjarni Ingvarsson. Leiklistarfélag Seltjarnarness frumsýnir leikritið Litli Kláus og Stóri Kláus í Félagsheimili Seltjarnarness laugardaginn 29. apríl kl. 14:00. Þetta er fjörugt fjölskydustykki fyrir unga jafnt sem aldna, eftir Lisu Tetzner byggt á sögu H.C.Andersen. Leikstjóri er Bjarni Ingvarsson. 16 leikarar taka þátt í sýningunni. Þetta er 8. leikár Leiklistarfélags Seltjarnarness sem eflist og þroskast með hverju leikári. Miðapantanir í síma 696-1314 hjá Jóhönnu, aðeins 6...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 9:00 — 13:00, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Vörur