Author: lensherra

Allra meina bót í Hveragerði

Nú kreppist kreppan enn meir og menn þurfa að skera, skera bæði UPP og niður í samfélaginu. Við í Leikfélagi Hveragerðis viljum sem minnst minnast á svoleiðis fréttir og umtal en í þetta skiptið verður ekki hjá því komist að mikið verður skorið UPP á sviðinu okkar hér í Hveragerði.   Þá er átt við gamanleikritið Allra meina bót eftir Jónas og Jón Múla Árnasyni, sem í leikstjórn heiðursfélagans Sigurgeirs Hilmars Friðþjófssonar, mun vekja gleði og kátínu hjá hverjum manni. Verkið gerist á sjúkrastofu þar sem ríkjum ræður ókrýndur konungur allra skurðlækna, Dr. Svendsen og tekur hann á móti...

Sjá meira

Æfingar hafnar á Manni í mislitum sokkum

Leikfélag Ölfuss æfir nú af kappi gamanleikinn Maður í mislitum sokkum eftir Arnmund Bachman í leikstjórn Gunnars Björns Guðmundssonar. Verkið fjallar á gamansaman hátt um ástir og örlög nokkurra eldri borgara og stöðu þeirra í þjóðfélaginu. Frumsýning er áætluð þann 16. október og verður sýnt í Versölum í Þorlákshöfn....

Sjá meira

Sýningar á Út í kött! hefjast að nýju

Sýningar Lýðveldisleikhússins á barnaleikritinu Út í kött! hefjast að nýju um helgina í Gerðubergi. Út í kött! er nýr dans og söngleikur fyrir börn á öllum aldri sem var frumsýndur síðastliðið vor. Verkið er ævintýraleikur og fjallar um tvo krakka og ferðalag þeirra um tölvu og ævintýraheima. Sýningarnar verða laugardaginn 26. september og sunnudaginn 27. september og hefjast kl. 14. Leikritið fjallar um strákinn Erp sem neyðist til að taka á móti dóttur vinafólks foreldra sinna inn í herbergið sitt. Helga Soffía er hress og hraðlýgin og kann frá mörgu undarlegu að segja. Erpur á erfitt með að sætta...

Sjá meira

Aðalfundur Leikfélags Hafnarfjarðar

Næstkomandi laugardag, 26. september klukkan 15:00, verður aðalfundur Leikfélags Hafnarfjarðar haldinn í gamla Lækjarskóla í Hafnarfirði. Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf, kosning stjórnar, farið yfir reikninga félagsins og áætlun um vetrarstarfið framundan kynnt. Sjáumst hress á laugardaginn !Stjórn Leikfélags Hafnarfjarðar...

Sjá meira

Rúi og Stúi á Sauðárkróki

Leikfélag Sauðárkróks er komið á fullt í æfingar á barnaleikritinu Rúi og Stúi eftir þá Skúla Rúnar Hilmarsson og Örn Alexandersson. Æfingar ganga ljómandi vel, enda hinn þaulreyndi leikstjóri Þröstur Guðbjartsson við stjórnvölinn og er stefnan sett á frumsýningu 25. október.  Í þessu bráðskemmtilega verki fá áhorfendur að kynnast félögunum Rúa og Stúa og vélinni þeirra stórkostlegu. Vélin er þeim hæfileikum gædd að hún leysir hvaða verkefni sem er, ja alveg þangað til hún klikkar.  Glöggum áhorfendum gæti dottið í hug að leikritið hefði skírskotun til núverandi efnahagsvanda, en því miður gott fólk – þetta er bara hrein skemmtun!...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert