Leikfélagið Peðið sýnir Sögur af mannlífsklakanum
Síðastliðinn laugardag frumsýndi Leikfélagið Peðið leikritið Sögur af mannlífsklakanum við frábærar undirtektir áhorfenda. Sýningin fór fram í nýinnréttuðu „leikhúsi“ á Gallerí Bar 46 að Hverfisgötu 46. Þessi leiksýning er 13 verkið sem Peðið setur upp og er höfundur þess Jón Benjamín Einarsson, leikstjóri er Björn Gunnlaugsson og tónlist er samin og flutt af Magnúsi R. Einarssyni. Mannlífsklakinn er hálf nöturlegt orð yfir samfélag og fráhrindandi eins og samfélagið sem það lýsir. Orðið er fengið að láni frá Jóhannesi Birkiland, sem átti á sínum tíma í brösum með samferðamennina. Síðan hefur hlýnað töluvert á klakanum. Bæði vegna náttúruhamfara, sem sjálfsagt...
Sjá meira


