Author: lensherra

Áhugaleikhús atvinnumanna gefur út bók

Bók Áhugaleikhúss atvinnumanna „2010, lárétt rannsókn“ kom út 31.desember í tengslum við sýningu leikhússins á annál ársins 2010, 12 örverkum um áráttur, kenndir og kenjar. Þetta er í fyrsta sinn hérlendis sem gefið er út bókverk sem tekur á samtímasviðslist en til þessa hafa einungis verið fjallað um sögu sviðslista í bókformi, markar því útgáfan tímamót í skráningu á samtímaviðburðum í sviðslistum. Bókin ætlar sér ekki að vera fræðirit heldur hefur það að markmiði að veita innsýn inn í lifandi samfélag starfandi sviðslistamanna og hugmyndir þeirra um fagið og hlutverk leikhússins í samfélaginu.   Bókin inniheldur viðtöl við leikara...

Sjá meira

Annáll Kómedíuleikhússins – Annó Kómedí 2010

,,Nú árið er liðið…” enn eitt Kómdíuárið að baki og við hæfi að horfa um öxl og kikka á hvað vestfirska atvinnuleikhúsið hefur verið að fást við á árinu. Sannarlega var árið 2010 Kómískt við bættum við okkur leikara, frumsýndum fjögur ný íslensk leikverk, sjöunda Act alone leiklistarhátíðin var haldin, Leiklistarkóli Kómedíu tók til starfa og síðast en ekki síst fengum við loks fast þak undir höfuðið. Árið hófst á Heilsugæslunni hápólitíska gamanleiknum sem hafði slegið í gegn árið áður um land allt. Farið var í leikferð um landið norður, suður og austur. Þann 18. mars var fyrsta frumsýning...

Sjá meira

Ofviðrið frumsýnt 29. desember

Jólafrumsýning Borgarleikhússins í ár er Ofviðrið eftir William Shakespeare í nýrri þýðingu Sölva Björns Sigurðssonar og leikstjórn Oskaras Korsunovas. Ofviðrið hverfist um heiftarleg átök hinna æðri og lægri hvata. Leikrit sem fjallar um fegurðina í dyggðinni og hina nauðsynlegu fyrirgefningu eftir áföll. Of­viðrið er dásamlegur gleðileikur uppfullur af húmor, ást og krafti. Hér er öllu tjaldað til, ástsælustu leikarar þjóðarinnar, Íslenski dansflokkurinn og einn fremsti leikstjóri heims. Ofviðrið gerist á eyju, einhvers staðar og hvergi – í ríki hugarflugsins. Þar ræður ríkjum Prospero sem búið hefur í útlegð árum saman ásamt ungri dóttur sinni, skrímslinu Kaliban og Ariel þjóni...

Sjá meira

Lokað yfir hátíðirnar

Um leið og við hérna á þjónustumiðstöð Bandalagsins óskum ykkur gleðilegra jóla og þökkum fyrir árið sem er að líða, viljum minna á að síðasti opnunardagur þjónustumiðstöðvarinnar fyrir jól er 22. desember, hún verður lokuð frá 23. desember og fram yfir áramót og við opnum aftur mánudaginn 3. janúar. Hlökkum til að sjá ykkur á nýju ári!...

Sjá meira

Leikstjóra vantar á Sauðárkrók

Leikfélag Sauðárkróks leitar að leikstjóra fyrir Sæluvikuleikrit félagsins 2011.  Starfstímabil leikstjóra er frá byrjun mars 2011 til 1. maí 2011. Áhugasamir geta sent formanni LS, Sigurlaugu Dóru Ingimundardóttur tölvupóst á netfangið sigurlaugdora@hotmail.com. Einnig er hægt að fá upplýsingar í síma 8625771. Í umsókn skal koma fram menntun, reynsla, launaóskir og hugmyndir að verkefnum. Öllum umsóknum verður svarað en áskilur LS sér þann rétt  hafna öllum. Umsóknarfrestur er til 4. janúar 2011....

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert