Author: lensherra

Aðalfundur Leikfélags Selfoss

Nú vorar loksins á Suðurlandinu sem og Selfossi og það þýðir aðeins eitt, aðalfundur Leikfélags Selfoss er á næsta leiti.  Aðalfundur Leikfélags Selfoss verður haldinn miðvikudaginn 11. maí kl. 20.00 í Litla leikhúsinu við Sigtún. Hann verður með hefðbundnu sniði, venjuleg aðalfundarstörf í léttri og heimilislegri stemningu. Sérstaklega bendum við á að inntaka nýrra félaga fer fram á aðalfundi og einnig fer fram kosning í stjórn. Áhugasömum er bent á að vera óhrædd við að bjóða sig fram, stjórnarstarfið er þroskandi, krefjandi, lærdómsríkt og skemmtilegt eins og flest áhugastarf. Kallað er eftir ábendingum um fólk sem bíður sig fram...

Sjá meira

Umsóknareyðublöð vegna ríkisstyrks 2011

Umsóknareyðublöð vegna styrkja Menntamálaráðuneytisins til sýninga áhugaleikfélaga fyrir leikárið 2010-2011 eru nú tiltæk hér á vefnum. Umsækjendur eru beðnir um að fara vandlega yfir leiðbeiningar sem fylgja eyðublöðunum og hafa samband við Þjónustumiðstöðina ef eitthvað er óljóst. Eyðublöðin sem eru á PDF-formi eru hér vinstra megin á forsíðunni. Frestur til að skila umsóknum til skrifstofu Bandalagsins er til 10. júní og athugið nýtt heimilisfang:Kleppsmýrarvegur 8104...

Sjá meira

Við flytjum!

Skrifstofa Bandalags íslenskra leikfélaga flytur sig um set í næstu viku og opnar á nýjum stað mánudaginn 23. maí nk. Vegna flutninganna verður lokað alla næstu viku eða frá mánudegi 16. maí. Nýja húsnæðið er á jarðhæð að Kleppsmýrarvegi 8 í póstnúmeri 104 í Reykjavík og er um 70 fm að stærð. Kleppsmýrarvegur gengur niður af Skeiðarvogi og þetta er mjög stutt frá Húsasmiðjunni við Skútuvog, sjá kort. Aðstoð sjálfboðaliða við flutningana er vel þegin. Við byrjum laugardaginn 14. á að taka niður hillur, flytja þær að nýja staðinn og setja þar upp. Til þess vantar okkur fólk með...

Sjá meira

Allra, allra síðasta aukasýning á Einkamál.is

Nú fer hver að verða síðastur að sjá Einkamál.is eftir Árna Hjartarson í leikstjórn Huldu B. Hákonardóttur og Þorgeirs Tryggvasonar. Frá því Hugleikur frumsýndi verkið 15. apríl sl. hefur verið uppselt á allar sýningar og færri komist að en vildu. Tvær aukasýningar voru því um helgina, en þriðja og allra síðasta aukasýningin verður í kvöld, mánudaginn 9. maí kl. 20.00. Sem fyrr er sýnt í húsnæði leikfélagsins að Eyjarslóð 9.   Einkamál.is er dramatískur fjölskyldugamanleikur um samtímafjölskyldu í heimatilbúnum vanda. Hvað gerir barnelskur karl þegar hann kemst að því að einkasonur hans og tengdadóttir hafa ákveðið að eignast ekki...

Sjá meira

Steinunn Knútsdóttir nýr deildarforseti leiklistar- og dansdeildar

Steinunn Knútsdóttir hefur verið ráðin í stöðu deildarforseta leiklistar- og dansdeildar. Hún tekur við af Ragnheiði Skúladóttur, sem hefur stýrt deildinni allt frá stofnun hennar haustið 2000. Steinunn hefur að baki fjölþættan feril, bæði í námi og starfi. Hún lauk bakkalárnámi í guðfræði við Háskóla Íslands, stundaði  leiklistarnám í Árósum, og lauk síðar meistaranámi í leiklistarfræðum og leikstjórn frá De Montfort háskólanum í Leicester, Englandi. Hún er einnig með diploma í leikstjórn frá Scandinavisk Centrum för Utvikling af Teater.   Steinunn hefur unnið með ýmsum leikhúsum og sviðslistahópum í Danmörku, Englandi og á Íslandi, bæði sem leikari, höfundur og...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert