Author: lensherra

Allra síðustu sýningar á Fjalla Eyvindi

Tvær sýningar í viðbót verða hjá Leikhópnum Aldrei óstelandi á Fjalla-Eyvindi Jóhanns Sigurjónssonar á Norðurpólum. Þær verða sunnudaginn 15. maí og þriðjudaginn 17. mai klukkan 20. Fjalla Eyvindur er ein magnaðasta ástarsaga íslensks leiksviðs og fjallar um stórar ástir og miklar fórnir, flókið samband karls og konu sem talar jafn mikið til okkar í dag og það gerði fyrir hundrað árum síðan. Þetta er óvenjuleg og einstök leikhúsupplifun í hráu rými. „Ég sá eitt sinn í draumi tvær mannverur, eina lögmál var ást þeirra. Þau voru hvort annars spegill. Í þeim spegli gat ekkert dulist.“ Leikritið Fjalla Eyvindur eftir...

Sjá meira

Gamli góði Villi – æfingar hafnar hjá Hugleik

Shakespeare gengur til liðs við Hugleik í síðasta verkefni félagsins á leikárinu. Ekki þó sjálfviljugur.  Höfundar félagsins hafa lagst yfir verk skáldsins og stolið þaðan öllu sem hnýsilegt má teljast en skrumskælt annað af vel þekktu smekkleysi sínu, og jafnvel samið frá grunni ýmislegt með misbeinar vísanir í verkin. Leikstjórar og leikendur hafa síðan bætt um betur með sínum uppátækjum. Útkoman er dagskrá sem fengið hefur nafnið Gamli góði Villi – Sjeikspír í höndum Hugleiks og óhætt að fullyrða sjaldan hefur sá gamli komist í hann krappari. Æfingar á leikþáttum og tónlist fyrir dagskrána standa nú yfir og verður...

Sjá meira

Skop á Sæluviku

Leikfélag Sauðárkróks Svefnlausi brúðguminnLeikstjóri: Jakob S. Jónsson Hefð er fyrir því að Leikfélag Sauðárkróks frumsýni í upphafi Sæluviku, hinni árlegu lista- og menningarhátíð Skagfirðinga sem rekur uppruna sinna allt aftur á 19. öld. Ekki var brugðið út af vananum að þessu sinni og þann 1. maí síðast liðinn frumsýndi leikfélagið leikritið Svefnlausa brúðgumann eftir Þjóðverjanna Arnold og Bach. Leikrit þeirra félaga eru nokkuð vel þekkt hér á landi, má þar nefna Húrra krakki, Spanskflugan, Stundum og stundum ekki og Karlinn í kassanum en öll þessi leikrit hafa verið sýnd nokkuð reglulega síðan um miðja síðustu öld. Líkt og hin...

Sjá meira

Aðalfundur Leikfélags Selfoss

Nú vorar loksins á Suðurlandinu sem og Selfossi og það þýðir aðeins eitt, aðalfundur Leikfélags Selfoss er á næsta leiti.  Aðalfundur Leikfélags Selfoss verður haldinn miðvikudaginn 11. maí kl. 20.00 í Litla leikhúsinu við Sigtún. Hann verður með hefðbundnu sniði, venjuleg aðalfundarstörf í léttri og heimilislegri stemningu. Sérstaklega bendum við á að inntaka nýrra félaga fer fram á aðalfundi og einnig fer fram kosning í stjórn. Áhugasömum er bent á að vera óhrædd við að bjóða sig fram, stjórnarstarfið er þroskandi, krefjandi, lærdómsríkt og skemmtilegt eins og flest áhugastarf. Kallað er eftir ábendingum um fólk sem bíður sig fram...

Sjá meira

Umsóknareyðublöð vegna ríkisstyrks 2011

Umsóknareyðublöð vegna styrkja Menntamálaráðuneytisins til sýninga áhugaleikfélaga fyrir leikárið 2010-2011 eru nú tiltæk hér á vefnum. Umsækjendur eru beðnir um að fara vandlega yfir leiðbeiningar sem fylgja eyðublöðunum og hafa samband við Þjónustumiðstöðina ef eitthvað er óljóst. Eyðublöðin sem eru á PDF-formi eru hér vinstra megin á forsíðunni. Frestur til að skila umsóknum til skrifstofu Bandalagsins er til 10. júní og athugið nýtt heimilisfang:Kleppsmýrarvegur 8104...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert