Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga 30. apríl 2011 í Mosfellsbæ
Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga í Bæjarleikhúsinu Mosfellsbæ 30. apríl 2011 1. Fundarsetning. Kosning 2ja og 2ja fundarritara, sem taka þegar til starfa. Lögmæti fundarins kannað. Þorgeir Tryggvason, formaður Bandalagsins bauð fundargesti velkomna. Hann stakk upp á Grétari Snæ Hjartarsyni og Pétri Ragnari Péturssyni frá Leikfélagi Mosfellsveitar sem fundarstjórum og Ármanni Guðmundssyni, ritara skrifstofu, og Sigríði Láru Sigurjónsdóttur, Hugleik, sem riturum fundar. Samþykkt. 2. Kjörnefnd afgreiðir kjörbréf og afhendir atkvæðaspjöld, skýrir stöðu mála varðandi stjórnarkjör og auglýsir eftir tillögum. Kjörnefnd, skipuð Dýrleifi Jónsdóttur, Emblu Guðmundsdóttur Umf. Reykdæla og Gerði Sigurðardóttur, Leikfélagi Selfoss og Leikfélaginu Sýni, afgreiddi kjörbréf og skýrði stöðu framboðsmála. 3. Menningarstefna Bandalagsins lesin og rædd. Ása Hildur Guðjónsdóttir, Halaleikhópnum og stjórn Bandalagsins, las menningarstefnuna. Engar umræður. 4. Staðfest inntaka nýrra félaga, félög tekin af félagaskrá. Ólöf Þórðardóttir, Leikfélagi Mosfellssveitar og ritari stjórnar, greindi frá hvaða félög hefðu sótt um inngöngu og hver væru á leið úr Bandalaginu. Úr Bandalaginu gengu Skagaleikflokkurinn, vegna skulda og Umf. Tálknafjarðar og Umf. Stafholtstungna að eigin ósk. Leikfélagið Skrugga, Leikdeild Umf. Gnúpverja og Áhugamannaleikklúbbur Grundarfjarðar höfðu sótt um inngöngu og fundurinn staðfesti ákvörðun stjórnar um að taka þau í Bandalagið. 5. Fundargerð síðasta aðalfundar afgreidd. Fundargerðin samþykkt einróma. 6. Skýrsla stjórnar. Þorgeir Tryggvason flutti skýrslu stjórnar fyrir leikárið 2010-2011: Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga í Mosfellssveit 30. apríl–1. maí 2011 I – stjórn Stjórn var þannig skipuð á...
Sjá meira


