Í hers höndum frumsýnt á Reyðarfirði
Leikfélag Reyðarfjarðar frumsýnir hinn glænýja gamanleik Í hers höndum í Félagslundi á Reyðarfirði 1. júlí næstkomandi. Höfundar eru Gunnar Ragnar Jónsson og Þórður Vilberg Guðmundsson og er þetta þeirra fyrsta verk. Aðeins verða tvær sýningar, sú síðari laugardaginn 2. júlí og hefjast báðar sýningar kl. 21.00. Þetta er annað árið í röð sem að Leikfélag Reyðarfjarðar gerir síðari heimsstyrjöldinni hátt undir höfði með nýju leikverki í tilefni hernámsdagsins sem haldinn er á Reyðarfirði 1. júlí ár hvert. Í sýningunni fáum við innsýn inn í hvað gerist þegar að 3000 erlendir karlmenn hellast yfir samfélag þar sem að 300...
Sjá meira


