Síðustu sýningar á Andakt
Jólasýning Peðsins í ár er gamansöngleikurinn Andakt eftir Guðjón Sigvaldason í leikstjórn Vilhjálms Hjálmarssonar.Tónlistin er eftir Kormák Bragason, Inga Gunnar Jóhannsson, Ásgeir Jónsson, Magnús R. Einarsson og Tómas Tómasson. Peðið sýnir síðustu sýningar á Andakt nú fyrir jól á sunnudaginn kemur, 18. desember kl. 16.00 og 18.00 á Gallerý Bar 46, Hverfisgötu 46, Reykjavík. Andakt er eins konar hugleiðing um inntak jólanna en frá ansi óvæntum hliðum. Með verkinu er ekki verið að snúa hefðbundnum gildum á haus og það er heldur ekki verið setja út á jólahátíðina sjálfa. Nei, ekki aldeilis. Það má skilja á þátttakendum í sýningunni að...
Sjá meira


